Erlent

Miklar loftárásir í Trípolí

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Þyrlur á vegum bandalagsríkja Nató hófu stórfelldar loftárásir á höfuðborg Líbíu, Trípolí, í nótt.

Fréttamenn breska ríkisútvarpsins segja árásirnar hugsanlega þær hörðustu síðan Nató hóf að framfylgja flugbanni í landinu.

Meðal skotmarka þyrlanna eru höfuðstöðvar sem Muammar Gaddaffi, einræðisherra Líbíu, er talinn dvelja í. Yfirvöld í Líbíu segja þrjá látna og 150 særða eftir árásirnar, sem hófust eftir að Frakkar tilkynntu að þeir myndu leggja tólf herþyrlur til átakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×