Hagfræðingur svarar syni í bók fyrir börn 28. mars 2011 20:30 „
Ég fann að mig langaði að prófa að skrifa bók fyrir börn en spurning sonar míns, sem ég gat ekki svarað, varð kveikjan að sögunni," segir Guðmundur Sverrir Þór, doktorsnemi í hagfræði og höfundur nýrrar barnabókar, Sjandri og úfurinn, sem kom út um miðjan marsmánuð. Guðmundur er doktorsnemi í hagfræði við sænska landbúnaðarháskólann í Uppsölum og starfar sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu meðfram nám. Hann segist jafnvel sjá fyrir sér að skrifa jöfnum höndum um hagfræði og sögur fyrir börn á næstunni. Barnabókin, sem er hans fyrsta, verði líklega ekki sú síðasta. „Ég er með aðra bók í smíðum þar sem sögupersónan verður áfram hinn fróðleiksfúsi gamli Sigurjón Andri, eða Sjandri. Hann spyr spurninga sem í fyrstu líta út fyrir að vera auðsvarað en það kemur svo á daginn að svörin liggja ekki í augum uppi. Sjálfur keppti ég í liði míns gamla menntaskóla í spurningakeppninni Gettu betur og það ergði mig svolítið að hafa ekki svar á reiðum höndum við einfaldri spurningu sonar míns –til hvers úfur væri. Leit mín að svarinu varð til þess að mér datt í hug að skrifa barnasögu þannig að það má segja að sonur minn hafi veitt mér innblástur." Bókina skrifaði Guðmundur árið 2007 en gaf hana ekki út strax, þar sem leit að myndskreyti fyrir söguna varð lengri en hann hélt. „Það endaði á því að fyrrverandi vinnufélagi minn, Andrés Andrésson, gerði teikningar sem pössuðu vel við söguna og þá lá beint við að koma henni út. Jú, ég hugsa að það sé óvenjulegt að hagfræðingar skrifi barnabækur en ég hef aldrei séð annað fyrir mér en að starfa við skriftir, og þá alveg eins bókaskrif eins og blaðaskriftir." juliam@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira