Hljóp uppi símaþjóf í Barcelona 22. mars 2011 10:00 Arnar Grant og Ívar Guðmundsson lentu í honum kröppum í Barcelona.Mynd/Jói Kjartans
Kraftakarlinn Arnar Grant var rændur þegar hann var í Barcelona við tökur á sjónvarpsþáttunum „Arnar og Ívar á ferð og flugi“ sem hefjast á Stöð 2 á fimmtudaginn. „Ég sat á römblunni og þá kom pottormur og tók símann minn sem lá á borðinu. Hann sprettaði í burtu og ég tætti á eftir honum,“ segir Arnar. „Ég náði í rassgatið á honum, lyfti honum upp, hristi hann til og reif símann af honum. Svo las ég honum pistilinn á íslensku og labbaði bara til baka. Ég held að honum hafi verið nokkuð brugðið og ég er nokkuð viss um að hann hafi lært sína lexíu.“ Í þáttunum ferðast Arnar og útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson til fimm borga, eða Barcelona, Berlínar, Kaupmannahafnar, London og New York, og lenda í hinum ýmsu ævintýrum. Í fyrsta þættinum í Barcelona spreyttu þeir sig á nautaati í fyrsta sinn. „Við mættum klukkutíma of seint og þá var búið að æsa nautin upp í heilan klukkutíma þegar þeim var hleypt í hringinn,“ greinir Arnar frá. „Það var mikið span á þeim og ég held að við höfum aldrei verið eins hræddir á ævinni. Ég tapaði þarna veðmáli fyrir Ívari og þurfti að vera í rauðum bol sem er ekki gæfulegt fyrir nautin.“ Í Kaupmannahöfn hittu þeir Casper Christensen úr sjónvarpsþáttunum Clovn og fór vel á með þeim félögum. „Hann borðaði með okkur smörrebrod og það kom mikið á óvart hvað hann er skemmtilegur fýr. Hann sagði okkur margar sögur sem er kannski ekki við hæfi að segja neins staðar.“ -fb
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira