Ritlist í HÍ kennd á meistarastigi 22. mars 2011 22:03
Frá og með haustinu 2011 verður ritlist kennd á meistarastigi við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Um er að ræða tveggja ára nám sem lýkur með MA-gráðu. Öllum sem hafa lokið einhvers konar grunnnámi frá háskóla gefst kostur á að sækja um inngöngu, líka þeim sem ekki hafa próf af Hugvísindasviði. Í tilkynningu segir að valið verður inn í námið á grundvelli innsendra ritsmíða og verða teknir inn allt að 25 nemendur á hverju hausti. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. „Með þessu fyrirkomulagi verður hægt að sinna nemendum mun betur en verið hefur og veita þeim þá einstaklingsmiðuðu leiðsögn sem listnám af þessu tagi krefst. Jafnframt verður hægt að bjóða ritlistarnemum að sækja námskeið í skyldum greinum á meistarastigi, s.s. í þýðingafræði, blaðamennsku, hagnýtri ritstjórn og útgáfu og hagnýtri menningu og miðlun. Námið felst annars vegar í verklegum smiðjuáföngum og hins vegar í bókmenntaáföngum,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að ritlist hafi verið í boði sem aukagrein frá 2002 og sem aðalgrein til BA-prófs frá 2008. Mikil aðsókn hefur verið að náminu undanfarin ár og sl. haust var ekki unnt að taka inn nýnema af þeim sökum. Stök ritlistarnámskeið verða áfram í boði á BA-stigi og stefnt er að því að ritlist verði í boði sem aukagrein í framtíðinni. Ritlistarnemar eru þegar farnir að láta talsvert til sín taka í bókmenntalífi þjóðarinnar. Þeir hafa gefið út tvö safnrit á undanförnum árum, stofnað tímarit, sent frá sér ljóðabækur og hreppt Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs, svo dæmi séu tekin. Þá hefur ritlist staðið fyrir hádegisfyrirlestrum undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?" og hafa þeir vakið athygli og verið fjölsóttir. Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og þýðandi, hefur yfirumsjón með ritlistarnámi við Háskóla Íslands.
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Sjá meira