Hvarf Atla og Lilju hefur ekki skaðað ríkisstjórnina Höskuldur Kári Schram skrifar 22. mars 2011 18:46
Þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar telja að ríkisstjórnin hafi ekki skaðast við brotthvarf Lilju og Atla úr þingflokki VG. Össur Skarphéðinsson telur að þvert á móti að þetta hafi styrkt ríkisstjórnina. Þrátt fyrir að tveir þingmenn í órólegu deild Vinstri grænna hafi yfirgefið þingflokkinn í gær er ríkisstjórnin eftir sem áður ósammála í mörgum veigamiklum málum. Þar á meðal í afstöðunni til Evrópusambandsins, í stóriðjumálum, í peningamálum og einnig hvað varðar breytingar á kvótakerfinu. Ríkisstjórnin hefur nú nauman meirihluta á þingi eða þrjátíu og þrjá þingmenn gegn þrjátíu. Það er því óvíst hvort hún hafi bolmagn til að koma stórum málum í gegnum þingið. Aðspurð segir að ríkisstjórnin muni ráða við stóru málin sem eru framundan. „Já, ég tel að við munum gera það, við komum í gegn fjárlögunum núna í desember, þrátt fyrir að hafa ekki alla með okkur þá í atkvæðagreiðslu. Þannig að það sýnir að þeir sem að baki þessari ríkisstjórn standa núna eru einharðir stuðningsmenn," segir Katrín Júlíusdóttir. „Þessi ríkisstjórn hefur tekist á við mörg mjög krefjandi verkefni og komist í gegnum þau og ég óttast ekki að við komust ekki í gegnum það sem framundan er þrátt fyrir þetta. Við höfum sýnt það í verki að við erum seig þó það gangi ekki allt eins og við vildum," segir Róbert Marshall þingmaður Samfylkingarinnar. Í sama streng tekur Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, sem segir að ákvörðun Atla og Lilju hafi ekki komið á óvart. „Þetta var bara tímaspursmál, þannig að staðan er óbreytt. Sjálfur hef ég sagt að ríkisstjórnin og staða hennar hafi styrkst. Það stafar af því að það er bara gott að aflétta óvissu," segir Össur. Þú treysti þér sem sagt til að vinna áfram með Vinstri grænum í þessari ríkisstjórn? „Já, og hugsanlega fleiri ríkisstjórnum," segir Össur.
Mest lesið Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Hörður Svavarsson er látinn Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Fleiri fréttir Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Sjá meira