Erlent

Mætti drukkinn í bílprófið

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

42 ára gamall Rúmeni mætti drukkinn í bílprófið sitt eftir að hafa verið sviptur ökuleyfi tveimur árum fyrr vegna ölvunarakstus þar í landi.

Starfsmenn voru fljótir að átta sig á ástandi Rúmenans þar sem hann var svo kófdrukkinn að hann gat varla staðið í lappirnar.

Hann var látinn blása í áfengismæli og kom þá í ljós að áfengismagnið í blóðinu hans var langt yfir leyfilegum mörkum. Sjálfur sagðist hann hafa verið svo stressaður fyrir prófið að hann varð að staupa sig áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×