Lögmenn kalla á breyttar áherslur 3. janúar 2011 05:00 Danskir lögmenn gagnrýna að efnahagsbrotadeild dönsku lögreglunnar skuli ekki efld. Nordicphotos/AFP
Fjöldi mála sem vísað er til efnahagsbrotadeildar dönsku lögreglunnar verður að engu þar sem hún hefur ekki mannafla til að sinna auknum málafjölda. Þetta kemur fram í danska viðskiptablaðinu Børsen. Blaðið hefur þetta eftir mörgum reyndustu gjaldþrotalögfæðingum landsins, en gjaldþrotum, sér í lagi á fasteignamarkaði, hefur fjölgað mjög í Danmörku síðustu misseri. Lögmennirnir kalla eftir því að stjórnmálamenn beiti sér fyrir því að stutt verði betur við efnahagsbrotadeildina. Haft er eftir Pernillu Bigaard, formanni Landssambands danskra skiptalögfræðinga, að hún hafi verulegar áhyggjur af því hversu erfiðlega gangi að hafa hemil á fólki sem grunað sé um gróf efnahagsbrot vegna tafa hjá lögreglu. „Og um leið horfum við upp á að gjaldþrota einstaklingar viðhalda lifnaðarháttum sem ekki ríma við persónulegt gjaldþrot þeirra,“ segir hún. Blaðafulltrúi danska dómsmálaráðuneytisins bendir á að lögreglan hafi heimildir til þess að ákveða sjálf ráðstöfun fjármuna til ólíkra málaflokka. Um leið viðurkennir Jens Madsen, yfirmaður efnahagsbrotadeildarinnar, að mikið álag sé á deildinni. „Ég get staðfest að við höfum aldrei áður haft jafnmörg mál á okkar könnu og að á því tímabili sem aukningin hefur átt sér stað hafa fjárheimildir okkar ekki verið auknar,“ segir hann við Børsen.- óká
Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Innlent Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum Innlent Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Innlent Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Fleiri fréttir Málverk stolið af nasistum fannst í argentískri fasteignaauglýsingu Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Ungstirni ryður sér til rúms Árásir á olíuvinnslu í Rússlandi bíta Flúði þungvopnaður eftir að hafa myrt tvo lögregluþjóna Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Sjá meira