Hvatti Sigurjón til að senda lagið inn 15. febrúar 2011 10:00 Hjartnæm stund. Þórunn Erna Clausen með sigurlaunin fyrir lagið Aftur heim eftir Sigurjón heitinn Brink. Þórunn ætlar að fylgja atriðinu til Þýskalands þar sem hún mun stýra því. Mynd/Daníel Rúnarsson „
Ég hafði alltaf trú á þessu lagi, alveg frá því að Sigurjón tók það upp. En svo er þessi keppni svo hverful að maður veit aldrei. Keppendurnir í ár voru náttúrlega frábærir, keppnin því mjög tvísýn og eiginlega ekkert öruggt,“ segir Þórunn Erna Clausen. Lagið Aftur heim eftir eiginmann hennar, Sigurjón heitinn Brink, sigraði Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn. Það voru vinir Sigurjóns; Hreimur Örn, Vignir Snær, Pálmi Sigurhjartarson, Matthías Matthíasson og Benedikt Brynleifsson sem fluttu lagið í beinni útsendingu sjónvarpsins. Sigur lagsins var nokkuð öruggur því samkvæmt atkvæðatölum frá RÚV fékk Aftur heim rúmlega 25 þúsund atkvæði. Ég trúi á betra líf eftir Hallgrím Óskarsson, sem hafnaði í öðru sæti, fékk rúmlega átján þúsund en alls bárust 96 þúsund atkvæði. Þórunn viðurkennir að henni hafi alltaf þótt lagið skemmtilegt og grípandi og hún hafi hvatt Sigurjón til að senda það inní keppnina á sínum tíma. Hann hafi síðan ekki tekið annað í mál en að hún semdi textann við það. Þórunn kveðst strax hafa orðið yfir sig hrifinn af laginu hans Sjonna. „Það er svo ólíkt þessum hefðbundnu Eurovision-lögum, það fylgir ekki neinum formúlum,“ segir Þórunn en margir hafa bent á að lagið sé nokkuð í anda dönsku laganna sem hafa náð langt í þessari keppni, laga á borð við Fly on the Wings of Love og I‘ll never ever let you go. Þórunn viðurkennir að síðarnefnda lagið hafi verið eitt fyrsta lagið sem hún og Sjonni æfðu saman og þau sungu óteljandi oft. Að sögn Þórunnar stendur til að þýða textann yfir á ensku og er sú vinna þegar hafin. Þórunn sá um að stýra atriðinu á laugardagskvöldinu, rétt eins og þegar Sigurjón keppti með lagið Waterslide. Og hún mun einnig sitja í leikstjórastólnum í Þýskalandi þegar atriðið keppir í Dusseldorf í sjálfri Eurovision freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fleiri fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“