Hátt í þúsund minntust Hemma í gærkvöldi 10. nóvember 2011 21:00 Unnið er að því að skipuleggja minningartónleika.
Hátt í þúsund FH-ingar mættu á minningarstund í Kaplakrika í gærkvöldi þar sem Hermanns Fannars Valgarðssonar var minnst. Að sögn Viðars Halldórssonar, formanns FH, þá er mikill drungi yfir bæjarfélaginu. Fráfall Hermanns, eða Hemma eins og hann var að jafnan kallaður, er sem reiðarslag fyrir Hafnfirðinga. Hemmi var bráðkvaddur á þriðjudagskvöldinu þegar hann var úti að skokka. Hemmi sat í stjórn FH og var í raun svo mikill FH-ingur að hann lét húðlúra merki liðsins á kálfann á sér. „Þetta er rosalegt áfall en verst fyrir aðstandendur Hemma. Það er erfitt að setja sig í spor þeirra," segir Viðar en fráfall Hemma hefur ekki síður haft áhrif á íþróttafélagið, því leik FH og Hauka, sem fram átti að fara í vikunni, var frestað vegna tíðindanna. Að sögn Viðar treysti liðið sér ekki til þess að spila vegna áfallsins. Viðar segir að minningarstundin í gærkvöldi hafi verið falleg. Þar hafi verið gífurlegur mannfjöldi. Prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, séra Einar Eyjólfsson, las minningarorð og fór með bænir. Þá söng tónlistarmaðurinn Jón Jónsson eitt lag, en hann er náfrændi Hemma. Þess má geta að síðar um kvöldið var einnig haldin minningarstund í Fríkirkjunni fyrir vini og vandamenn. Það er þungt hljóðið í Viðari og það fer ekki á milli mála að andlát Hemma hefur tekið gífurlegan toll af öllum bæjarbúum. „Það má segja að það sé drungi yfir öllu. En Hemmi hefði ekki viljað neitt annað en að hlutirnir héldu áfram," segir Viðar Og það er margt á prjónunum, þannig vinna FH-ingar hörðum höndum að því að skipuleggja minningartónleika í hans nafni. Hermann lætur eftir sig eiginkonu og fjögurra ára gamlan son.
Tengdar fréttir Hermann Fannar látinn Maðurinn sem fannst látinn í Hafnarfirði í fyrrakvöld hét Hermann Fannar Valgarðsson. Hann var 31 árs gamall og lætur eftir sig eiginkonu og fjögurra ára gamlan son. 10. nóvember 2011 10:57 Fannst látinn í Hafnarfirði Karlmaður fannst látinn á opnu svæði í Hafnarfirði í gærkvöld. Þetta staðfestir lögreglan í samtali við Vísi. Hún segir að maðurinn hafi látist af völdum veikinda og vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málavexti. 9. nóvember 2011 12:03 Samstarfsmenn á X-inu: Hemmi var týpan sem maður faðmaði "Þessi litla útvarpsstöð verður aldrei aftur söm án Hemma sem var einhver glaðlyndasti og hjálpsamasti samstarfsmaður og vinur sem við höfum átt," segir í kveðju frá samstarfsmönnum Hermans Fannars Valgarðssonar á X-inu 977. 10. nóvember 2011 15:36 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Hermann Fannar látinn Maðurinn sem fannst látinn í Hafnarfirði í fyrrakvöld hét Hermann Fannar Valgarðsson. Hann var 31 árs gamall og lætur eftir sig eiginkonu og fjögurra ára gamlan son. 10. nóvember 2011 10:57
Fannst látinn í Hafnarfirði Karlmaður fannst látinn á opnu svæði í Hafnarfirði í gærkvöld. Þetta staðfestir lögreglan í samtali við Vísi. Hún segir að maðurinn hafi látist af völdum veikinda og vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málavexti. 9. nóvember 2011 12:03
Samstarfsmenn á X-inu: Hemmi var týpan sem maður faðmaði "Þessi litla útvarpsstöð verður aldrei aftur söm án Hemma sem var einhver glaðlyndasti og hjálpsamasti samstarfsmaður og vinur sem við höfum átt," segir í kveðju frá samstarfsmönnum Hermans Fannars Valgarðssonar á X-inu 977. 10. nóvember 2011 15:36