Spádómskýrin Glæta spáir Íslandi sigri 13. janúar 2011 21:23
Fyrsti leikur Íslands gegn Ungverjalandi á Heimsmeistaramótinu í handbolta verður jafn og spennandi en sigurinn dettur okkar megin á lokasekúndunum. Þessu spáir kýrin Glæta frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, sem sögð er búa yfir spádómsgáfu. Flestir muna eftir þýska kolkrabbanum Páli sem heillaði heimsbyggðina með spádómum sínum í kringum heimsmeistaramótið í knattspyrnu í sumar. En nú er það handboltinn. Þetta er hún Glæta sem sögð er hafa byrjað að spá fyrir kappleikjum löngu á undan Páli og var því ákveðið að fá hana til þess að kíkja á komandi mót. Líkt og sjá má í meðfylgjandi myndbandi þá var Glæta lengi að ákveða sig fyrir Ungverjaleikinn en Davíð Eldur Baldursson tók meðfylgjandi myndband af kúnni við störf. „Það er sagt með hana þegar hún er lengi að ákveða sig, eins og í þessu tilviki, þá verði leikurinn jafn og ráðist hugsanlega ekki fyrr en á síðustu mínútunum," segir Davíð Eldur. Davíð fékk Glætu til þess að spá fyrir um alla leiki Íslands í riðlakeppninni og er hún frekar bjartsýn á gengi liðsins. Þó sé þar einn leikur sem hafi komið öllum á óvart. Veðbankar hafa verið að spá Íslandi 6. til 8.sæti en fyrstu sjö sætin gefa þáttökurétt í umspili fyrir Ólympíuleikana í London 2012, því er mikið undir. En veit Glæta eitthvað í sinn kýrhaus þegar kemur að handbolta? „Kannski ekki alltaf hundrað prósent, hún hefur klikkað á leik, en hún er betri en flestir veðbankar," segir Davíð Eldur brattur að lokum.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Fleiri fréttir Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Sjá meira