Eyjólfur: Liðið í áfalli eftir fyrra markið Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 14. júní 2011 19:27
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðs Íslands, segir að sínir menn hafi verið lengi að jafna sig á fyrra markinu sem Sviss skoraði í leik liðanna í kvöld. Markið kom eftir tæpa mínútu en Sviss vann á endanum 2-0 sigur. Ísland tapaði fyrir Hvíta-Rússlandi um helgina og er því án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. „Við fáum á okkur mark strax eftir eina mínútu og liðið var í miklu áfalli eftir það og náði sér engan veginn á strik. Það er áhyggjuefni fyrir okkur eftir þessa tvo leiki að í bæði skiptin sem við verðum fyrir áfalli þá komum við ekki til baka. Við náum ekki að stjórna leiknum eins og við ætluðum okkur og það þurfum við að bæta," sagði Eyjólfur við Vísi eftir leikinn. „Í seinni hálfleik var þetta mun betra hjá okkur. Þá breyttum við til og fórum í 4-4-2. Við höfðum ekki verið að spila okkur í gegnum miðjuna hjá þeim og því breyttum við til með því að setja fleiri lengri bolta upp og þrýsta á eftir. Það var mun betra og þeir sýndu líka allt annað hugarfar. Þeir voru mun áræðnari." Eyjólfur segir að það hafi verið erfitt að fylgjast með því hvað lítið hefur fallið fyrir íslenska liðið í keppninni til þessa. „Bjargað á línu, fáum ekki hendi, rautt spjald, rangstöðumark. Við þurfum að sækja þessa heppni og vera ákveðnari. Þá kemur heppnin til okkar aftur. Nú gildir að sigra Dani sem við höfum ekki oft gert en það verður mjög erfitt verkefni og spennandi. Ég held að strákarnir alveg örugglega æstir í að nota síðasta leikinn til að sýna sitt rétta andlit."
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira