Íslenskum liðum gengið illa með Sviss í gegnum tíðina Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 14. júní 2011 09:30 Shaqiri framherji Svisslendinga er skotglaður leikmaður Mynd/Getty Images
Íslenska U-21 landsliðið mætir í dag liði Sviss á EM í Danmörku og er að duga eða drepast fyrir drengina okkar. Ísland má alls ekki við því að tapa leiknum í dag til að eiga enn möguleika á að komast upp úr sínum riðli og í undanúrslit keppninnar. Drengirnir töpuðu sínum fyrsta leik fyrir Hvít-Rússum, 2-0, en Svisslendingar unnu sjálfa gestgjafana, Dani, 1-0 um helgina. Knattspyrnusamband Evrópu tekur saman hversu oft landslið og félagslið frá viðkomandi löndum hafa mæst og er samanburðurinn fyrir leikinn í kvöld Íslandi heldur betur í óhag, þó það hafi vitaskuld lítið sem ekkert að segja þegar út í sjálfan leikinn er komið. U-21 lið Íslands og Sviss voru saman í undankeppninni fyrir EM 1996 og vann síðarnefnda þjóðin báðar viðureignirnar, 2-1 á heimavelli og 4-2 á Íslandi. U-17 liðin hafa tvívegis mæst og Svisslendingar unnu í bæði skiptin. 2-0 árið 2002 og svo 2-1 fyrir þremur árum síðan. A-landslið Sviss hefur unnið allar fjórar viðureignar sínar gegn Íslandi og spilaði Eyjólfur Sverrisson tvívegis með íslenska landsliðinu gegn því svissneska í undankeppni EM 1996. Félagslið frá Íslandi og Sviss hafa tólf sinnum mæst í gegnum tíðina. Átta sinnum hefur niðurstaðan verið svissneskur sigur en fjórum sinnum jafntefli. Eini sigurinn sem fannst í þessari samantekt var sigur A-liðs kvenna á stöllum sínum frá Sviss í vináttulandsleik sem fór fram á Akranesi í ágúst árið 1986. Sá leikur vannst, 1-0. Kvennalandsliðin hafa alls þrívegis mæst en einum leik lauk með jafntefli og einum með sigri Sviss. Xherdan Shaqiri tryggði Svisslendingum 1-0 sigur á Dönum um helgina en hann hefur einnig skorað gegn íslensku liðið. Það gerði hann í leik með Basel gegn KR í 3-1 sigri liðsins á heimavelli í undankeppni Evrópudeild UEFA fyrir tveimur árum.
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjá meira