Erlent

Hrapaði til jarðar á flugsýningu

Mynd/AP
Eins hreyfils flugvél hrapaði til jarðar á flugsýningu í Plock í miðhluta Póllands í gær. Flugmaðurinn var einn um borð í flugvélinni, sem er að gerðinni Christen Eagle II og er mjög vinsæl til að sýna alls kyns flugkúnstir.

Flugmaðurinn var að taka lykkju í loftinu þegar flugvélin hrapaði og hafnaði í Vistula ána. Björgunarmenn náðu flugmanninum út úr flakinu og hófu þegar lífgunaraðgerðir áður en flugmaðurinn var fluttur á sjúkrahús. Ekki liggur fyrir hvort hann lifði slysið af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×