Spánverjar og Tékkar komust í undanúrslitin á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2011 20:41 Juan Manuel Mata fagnar öðru marka sinna í kvöld. Mynd/AP
Riðlakeppni Evrópumóts U21 árs landsliða í Danmörku lauk í kvöld þar sem að Spánn og Tékkland komust upp úr B-riðli og tryggðu sér sæti í undanúrslitunum. Sviss og Hvíta-Rússland tryggðu sér sín sæti í gær á kostnað Íslendinga og Dana. Spánverjar sýndu styrk sinn með því að vinna öruggan 3-0 sigur á Úkraínumönnum. Juan Manuel Mata, leikmaður Valencia, skoraði tvö mörk (eitt úr víti) og Adrián López, leikmaður Deportivo La Coruna, gerði þriðja markið. Adrián er markahæsti leikmaður keppninnar með þrjú mörk. Tékkar tryggðu sér 2-1 sigur á Englendingum með því að skora tvö mörk á síðustu mínútum leiksins þegar allt leit út fyrir að enska liðið væri að komast í undanúrslitin. Danny Welbeck kom Englendingum yfir með skalla á 76. mínútu eftir fyrirgjöf Daniel Sturridge. Jan Chramosta jafnaði leikinn á 89. mínútu með því að skora af stuttu færi eftir klaufagang í vörn Englendinga og þar með voru Tékkar komnir áfram. Englendingar reyndu að tryggja sér sigurinn í blálokin en Tékkar náðu skyndisókn í uppbótartíma þar sem að Tomas Pekhart skoraði sigurmarkið eftir sendingu frá Chramosta. Undanúrslitin fara síðan fram á miðvikudaginn og þar mætast Spánn og Hvíta Rússland í fyrri leiknum og Sviss og Tékkland mætast síðan seinna um kvöldið. Liðin keppa ekki aðeins um Evrópumeistaratitilinn því þrjú efstu komast inn á Ólympíuleikana í London 2012.
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjá meira