Eimskip vill Hringrás ekki lengur á brott 14. júlí 2011 06:30 Svona var umhorfs á lóð Hringrásar í gær. Þar hefur verið unnið af krafti að hreinsunarstarfi. Fréttablaðið/vilhelm
Forsvarsmenn Eimskips telja ekki að starfsemi Hringrásar þurfi að flytjast frá Sundahöfn og fjær fyrirtækjunum í grenndinni. Starfsemi Eimskips raskaðist eftir brunann mikla aðfaranótt þriðjudags vegna eitraðs reyks sem lagðist yfir svæðið. „Við ræddum þetta í dag og sjáum ekki ástæðu fyrir því að þeir ættu að þurfa að lúta einhverjum stífari reglum en aðrir, á meðan þeir uppfylla þau skilyrði sem þeim eru sett,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskipa. „Þetta er hafnsækin starfsemi og hún þarf að vera við höfn,“ bætir hann við. „Það geta allir lent í því að einhverjir óprúttnir vitleysingar kveiki í. Þeir voru búnir að gera allar ráðstafanir til að tryggja að svona gerðist ekki af sjálfsdáðum.“ Fyrir það beri ekki að refsa þeim. Eimskip var meðal tíu fyrirtækja á svæðinu sem skrifuðu harðort bréf til borgaryfirvalda árið 2005 þegar ákveðið var að framlengja starfsleyfi Hringrásar eftir brunann risavaxna síðla árs 2004. Þar kvað við annan tón en nú. Í bréfinu sagði meðal annars: „Eðli umræddrar starfsemi skaðar hagsmuni allrar nærliggjandi starfsemi og eiga nær- og aðliggjandi fyrirtæki eðlilega kröfu á hendur borgaryfirvöldum að þau fjarlægi svo óskylda starfsemi af svæðinu.“ Þá var óábyrgur rekstur Hringrásarmanna í aðdraganda fyrri brunans gagnrýndur harðlega í bréfinu. Aðeins væri tímaspursmál hvenær annar stórbruni yrði. Ólafur segir að þá hafi aðrar aðstæður verið uppi og Hringrás hafi tekið sig verulega á síðan. „Ég held að umræðan um að svona fyrirtæki þurfi að líða fyrir að það séu glæpamenn í samfélaginu sem gangi lausir og kveiki í sé hæpin á þessum tímum. Nú er hvert einasta starf á landinu verðmætt. Stjórnvöld ættu frekar að leggja meiri pening í forvarnir en að reyna að bola rekstri úr bænum.“ Framkvæmdastjóri Hringrásar sagði í fréttum RÚV í gær að vel kæmi til greina að byggja yfir dekkjahauginn til að varna því að eldur kæmist að honum. Slíkum hugmyndum fagnar Ólafur. „Allar betrumbætur á hafnarsvæðum eru góðar, við erum alveg sammála því.“ Lögreglurannsókn á brunanum stendur enn. Talið er víst að kveikt hafi verið í. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira