Ráðherra ber við mismælum um nauðganir 19. maí 2011 05:30 Mynd/ AFP
Stjórnarandstæðingar í Bretlandi hafa kallað eftir afsögn Kenneths Clarke dómsmálaráðherra vegna ummæla sem hann lét falla í útvarpsviðtali í gærmorgun. Þar mátti skilja á orðum ráðherra að hann teldi ekki allar nauðganir falla undir skilgreininguna „alvarlegar nauðganir“. Í frétt á vef BBC segir að Clarke hafi í viðtalinu rætt um tillögur um að lækka beri fangelsisdóma um helming ef ákærðir játa án undanbragða. Spyrill spurði hann þá út í nauðganir, þar sem meðaldómur er að meðaltali fimm ár. Þar bar Clarke brigður á umræddar tölur og sagði: „Þarna erum við líka að tala um stefnumótanauðganir, þegar 17 ára einstaklingur á samræði við 15 ára.“ Hann bætti svo við: „Alvarlegar nauðganir, þar sem ofbeldi er beitt og gegn vilja konunnar – dómar eru lengri í þeim tilfellum.“ Mikið orðastríð fór í kjölfarið af stað þar sem Ed Miliband, formaður Verkamannaflokksins, hvatti Clarke til að segja af sér því að hann gæti ekki setið í umboði kvenna eftir þessi ummæli. Clarke neitar að hafa sagt nokkuð sem kallar á afsögn. Hann hafi þó misskilið hugtakið „stefnumótanauðgun“ og talið það eiga við þar sem samræði er með vilja beggja aðila, þó að annar þeirra sé undir lögaldri. „Mín skoðun er sú að allar nauðganir séu alvarlegur glæpur og hafi ég gefið annað í skyn, þá hef ég mismælt mig,“ sagði Clarke. Talsmaður forsætisráðherra sagði það leitt ef orð Clarkes hefðu sært einhverja, en hann nyti enn fulls trausts. - þj
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira