Veigar Páll: 14 kílómetrar í útileik með landsliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Osló skrifar 2. september 2011 10:00
Veigar Páll Gunnarsson þurfti ekki að ferðast langa leið til að koma til móts við íslenska landsliðið hér í Noregi enda hefur hann búið hér í Osló um árabil. Ísland og Noregur mætast á Ullevaal-leikvanginum í Osló í kvöld í undankeppni EM 2012. „Ég sat með sjónvarpsmenn frá norskri sjónvarpsstöð til að mæla hvað það væri langt fyrir mig að fara í þennan útileik og það voru akkurat fjórtán kílómetrar," sagði Veigar Páll en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan eða með því að smella hér. „Ég er búinn að vera hér í Noregi í átta ár og þekki hvern og einn einasta leikmann í norska landsliðinu. Mér líður mjög vel hér. En ég er þó enn Íslendingur," sagði hann. Veigar Páll segir að það ríki mikil stemning í Noregi fyrir landsliðinu. „Ég veit að þeir vilja ekki missa stig hér á heimavelli þegar þeir eru svo nálægt því að geta tryggt sér sæti í úrslitakeppni EM. Þeir vilja ekki fara til Danmerkur með þá pressu að þurfa nauðsynlega að vinna þann leik. Það er því mikil spenna fyrir þessum leik hér í Noregi." Þó svo að mikill munur sé á liðunum tveimur á styrkleikalista FIFA reiknar Veigar Páll ekki með því að Norðmenn muni vanmeta íslenska liðið. „Sérstaklega þegar mið er tekið af síðustu þremur leikjum okkar því Norðmenn hafa lent í basli með okkur. Ég veit að þeir eru hræddir við okkur og vita að þessi 112 sæti sem eru á milli liðanna á FIFA-listanum gefa rétta mynd af stöðu þeirra." „Við höfum þar að auki engu að tapa og getur það virkað vel á leikmenn - þeir geta því mætt nokkuð afslappaðir til leiks og leyft sér hluti sem þeir gera annars ekki þegar það er pressa á þeim."
Mest lesið Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Körfubolti „Hann hefði bara átt að kyngja þessu, vera stór og halda áfram úti“ Körfubolti Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Handbolti Stjarnan - Keflavík | Stórleikur í Garðabæ Körfubolti KR í samstarf við akademíu í Gana Fótbolti EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Handbolti Áhugamaður vann meistarann og milljón dollara Sport Fleiri fréttir Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt KR í samstarf við akademíu í Gana Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Samuel Eto'o settur í bann fyrir slæma hegðun en sambandið kvartar Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Sjáðu bæði mörk Viktors í gær Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins Heimamenn Marokkó í úrslitaleikinn eftir vítaspyrnukeppni „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Martraðarbyrjun hjá Arbeloa í Madríd Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Tómas Bent gulltryggði sigurinn Blysin slógu Bæjara ekki út af laginu Hörður skoraði og Sverrir hélt hreinu Mané skaut Senegal í úrslit en Salah sást varla Viktor Bjarki með tvennu í undirbúningi fyrir Meistaradeildina Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Ásdís Karen fagnaði sigri gegn stórliðinu Blikar farnir að fylla í skörðin María í eitt besta lið Svíþjóðar en tekur íslenska landsliðið fram yfir það sænska Ajax fær son Zlatans að láni frá AC Milan Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Klopp: Brottför Xabi Alonso frá Real Madrid kemur mér ekkert við Kallar stjörnur Real Madrid „dekraða krakka“ Leita að þeim sem truflaði Mo Salah með græna ljósinu Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Meiðslamartröð Orra um að kenna en ekki leiðinlegum þjálfara Sjá meira