Bíða gagna frá Sjálfstæðisflokknum 4. ágúst 2011 07:00 Starfsmaðurinn hafði aðstöðu í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Pjetur
Lögregla bíður nú gagna frá Sjálfstæðisflokknum áður en saksóknari tekur afstöðu til kæru sem flokkurinn lagði fram vegna meints fjárdráttar sem kom upp hjá Norðurlandaráði í vor, segir Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Málið var kært til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, en greint var frá því í fjölmiðlum að grunur léki á að það fé sem starfsmaður Norðurlandaráðs er grunaður um að hafa dregið sér sé á annan tug milljóna króna. Eins og fram hefur komið er starfandi innan Norðurlandaráðs svokallaður íhaldshópur sem er samstarfsvettvangur hægri manna á Norðurlöndum. Undanfarin ár hefur starfsmaður hópsins verið íslenskur með aðstöðu í Valhöll. Hann lét af störfum fyrr á árinu þar sem Finnar áttu að taka við keflinu. Við mannaskiptin vaknaði grunur um að ekki væri allt sem skyldi varðandi fjármál hópsins. Fyrirspurnir frá Finnlandi leiddu til þess að bókhald var skoðað og vísbendingar bentu til þess að starfsmaðurinn hefði dregið sér fé. Maðurinn hélt til útlanda eftir að grunurinn vaknaði. Ekki er vitað hvort hann dvelur erlendis eða hér á landi um þessar mundir. Umræddur maður hefur ekki verið kallaður til yfirheyrslu þar sem rannsóknin er ekki hafin, að sögn Guðmundar. Hann segist ekki geta tjáð sig um innihald þeirra gagna sem beðið sé frá Sjálfstæðisflokknum. - jss
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira