Markvörður rekinn eftir einn leik Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. júlí 2011 20:30
Brasilíumaðurinn Rodrigo Galatto, markvörður Neuchatel Xamax í svissnesku knattspyrnunni, var rekinn eftir aðeins einn leik á milli stanganna hjá félaginu. Mikið hefur gengið á hjá svissneska félaginu síðan Tsjetsjeninn Bulat Chagaev keypti félagið í maí. Chagaev hefur ráðið ríkjum hjá Xamax í um tvo mánuði. Tveir þjálfarar hafa fengið að taka pokann sinn, öllu skrifstofufólkinu verið sagt upp auk þess sem samningum við alla styrktaraðila félagsins hefur verið rift. Neuchatel Xamax beið lægri hlut gegn Lucerne 3-0 í svissnesku deildinni um helgina og þótti frammistaða Galatto ekki upp á marga fiska. „Rodrigo Galatto er ekki hluti af liðinu lengur," sagði Sonny Anderson úr þjálfarateymi félagsins og landi Galatto. Félagið þurfti að handskrifa miðana á leik liðsins gegn Lucerne þar sem félagið hafði ekki tök á því að prenta miðana í tíma eftir endurskipulagninguna á skrifstofu félagsins. Galatto varð frægur á einni nóttu í heimalandi sínu fyrir frammistöðu sína í leik með Gremio árið 2005. Þá tókst Gremio að sigra Nautico 1-0 þrátt fyrir að fjórum leikmönnum liðisins hefði verið vikið af velli. Galatto varði meðal annars vítaspyrnu í leiknum. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur liðanna um sæti í efstu deild brasilískrar knattspyrnu. Myndband úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Póllandi: Velkominn Haukur og Ýmir í vígahug Handbolti Svona var stuðið fyrir leik í Kristianstad Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Stærsta stund strákanna okkar Handbolti Fleiri fréttir Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Í beinni: Real Sociedad - Barcelona | Án Orra reyna þeir að skáka Börsungum Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Ísaki fórnað í langþráðum sigri Kölnar Birta hetja Genoa í frumrauninni Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Mbappé á skotskónum í fyrsta sigrinum undir stjórn Arbeloa Draumabyrjun hjá Carrick KR fær tvo unga Ganverja „Stoltur að fá þetta tækifæri og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut“ Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Hákon horfði upp á tap er PSG tók toppsætið Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Sjá meira