"Hér drýpur blóð banka" Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. mars 2011 20:46 Skilaboðin frá Halldóri eru nokkuð greinileg á húsinu. Mynd/ Frikki.
Halldór Gunnarsson missti húsið sitt sem hann hafði sjálfur byggt við Austurgötu í Hafnarfirði í haust. Hann er ósáttur við niðurstöðuna og að hann þurfi að líða fyrir þann forsendubrest sem varð við bankahrunið. Bankinn tók húsið og Halldór flutti út um áramótin. Hann ákvað að fara að húsinu í dag með smá skilaboð til stjórnvalda og bankanna. „Hér drýpur blóð banka - Takk Árni Páll" skrifaði Halldór á húsið. Halldór eignaðist lóðina við Austurgötu árið 1991 og byggði upp nýtt hús þar. Hann tók íslensk lán fyrir húsinu og byggði það sjálfur. „Þetta leit allt bara vel út eins og forsendur voru í þjóðfélaginu. Svo þegar hrunið verður þá verður líka forsendubrestur hjá mér og ég hætti að greiða af því. Svo náttúrlega heldur tíminn bara áfram og endar með því að húsið verður tekið. Ég sá enga ástæðu til að semja um eitt eða neitt vegna þess að það var ekki grundvöllur til þess," segir Halldór í samtali við Vísi. Hann segir það ekki hafa breytt neinu þótt lánin væru íslensk, en ekki bundin við gengi í erlendri mynt. „Það þarf ekkert til, þegar ég er búinn að vera að vinna í byggingageiranum og var að fá 5-600 þúsund á mánuði og detta svo niður í átta tíma á dag. Það segir sig alveg sjálft að dæmið gengur aldrei upp," segir Halldór.Halldór tók sér íbúð á leigu eftir að hann flutti af Austurgötunni, en varð að flytja út þegar ljóst varð að hann væri atvinnulaus og gæti ekki greitt húsaleigu af bótunum. Hann er því upp á vini og ættingja kominn með samastað. Hann segist hafa séð húsið auglýst til sölu, fyrst í smáauglýsingu í Fréttablaðinu, en síðan á fasteignavefjum. Það hafi stungið í augun að húsið væri verðsett um tveimur milljónum undir fasteignamati. „Yfirleitt eru svona hús yfir fasteignamati," segir Halldór. Eftir að hann sá húsið auglýst fór hann og ákvað að mála skilaboðin á það. Hann hringdi svo í lögregluna og lét vita að hann hefði málað húsið. „Svo var ég spurður að því af lögreglunni hvort ég vissi hver þetta væri. Þá var ég svona eiginlega að láta þá vita að það væri ég sem hefði gert þetta, þannig að málið væri bara upplýst," segir Halldór. Hann á allt eins von á því að verða kærður fyrir athæfi sitt. „Alveg eins sko, hann var svona að spyrja mig hvaða málningu ég hefði notað og hvort ég ætlaði að gera þetta aftur," segir Halldór um samskipti sín við lögregluna. Halldór segist ekkert hafa að fela og þverneitar því að hafa unnið skemmdir á húsinu. „Þetta er ekki skemmdarverk, þetta er bara málning. Það er engin skemmd eftir mig," segir Halldór. Hann vekur athygli á því að skilaboðin séu máluð með olíumálningu ofan á olíumálningu og það sé auðvelt að gera við.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira