Innlent

Dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir manndráp

Redouane Naoui.
Redouane Naoui.
Redouane Naoui var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Hann stakk fórnarlamb sitt, Hilmar Þóri Ólafsson, í hálsinn á skemmtistaðnum Monte Carlo í júlí síðastliðnum, með þeim afleiðingum að hann lést af völdum áverkanna.

Naoui var verulega ölvaður þegar hann réðist á Hilmar. Hann sagði fyrir dómi að hann mundi ekkert eftir atburðinum og þekkti Hilmar lítið sem ekkert.

Naoui er einnig gert að greiða dóttur Hilmars tvær milljónir króna í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×