Mosi gæti virkað í baráttunni gegn krabbameini og malaríu Karen D. Kjartansdóttir skrifar 26. janúar 2011 18:31
Líkur eru á að íslenskur mosi búi yfir efnum sem gætu virkað í baráttu gegn krabbameini og malaríu. Lyfjafræðingar sem rannsaka þessa jurt líkja henni við fjársjóðsleit. Mikill og vaxandi áhugi er á hugsanlegum lækningarmætti íslenskra jurta og lífvera hérlendis og erlendis. Sesselja Ómarsdóttir, dósent í lyfja- og efnafræði náttúruefna við Háskóla Íslands, er meðal þeirra sem hefur fengið styrki til að vinna að rannsóknum á þeim. En þær miða einkum að kanna hvort sjávarhryggleysingar úr íslenskum sjó hafi að geyma eitthvað sem kynni að duga í baráttu við illkynja sjúkdóma. „Við erum tiltölulega nýfarin af stað með rannsóknir á sjávarhryggleysingjum en við vitum að þar er að finna gríðarlegt magn af lífvirkum efnum. Rannsóknir á þeim hefjast fyrir alvöru í kringum 1970 en þær hafa flestar verið gerðar á lífverum sem lifa í heitum sjó þannig að svæðið í kringum Ísland er óplægður akur, ef svo má segja," segir Sesselja. Hún segist hafa orðið vör við mikinn áhuga erlendra fræðimanna á þessum athugunum. "Við erum í góðu samstarfi við vísindamenn erlendis og það helgast mjög af því að hérna er spennandi náttúra og við fáum oft fyrirspurnir frá erlendum aðilum um að fá íslenskar náttúruafurðir til rannsóknar." Meðal nemanda Sesselju er Sophie Jensen frá Svíþjóð sem segir íslenska náttúru heilla mjög. En meðal þess sem hún kannar er mosi sem hún segi hreint ekki óspennandi lífveru. "Mosi er ein af frumstæðustu plöntum á plánetunni og telja sumir að hann hafi verið fyrsta plantan sem skreið upp á land þótt hann vaxi enn á mjög votum svæðum og Ísland er þar með alveg kjörinn staður fyrir hann. En út af því hvað hún er frumstæð og hefur lifað af í allar þessar milljónir ára er áhugavert að skoða hvaða efni hún framleiðir til að lifa af og hvernig hún ver sig gegn snýklum. Það hefur komið í ljós að hún framleiðir eitthvað áhugavert sem ég er prófa gegn krabbameinsfrumum og gegn malaríusnýklinum," segir Sophie. Sesselja segir þær niðurstöður sem þegar hafa komið fram lofa mjög góðu en biður fólk að hafa það í huga að tilraunirnar séu enn bundnar við tilraunaglös og því ekki hægt að yfirfæra niðurstöðurnar á menn strax. Sesselja skellir upp úr þegar hún er spurð hvort fólk saki hana ekki stundum um kukl og segir að vinnubrögðin eigi ekkert skylt við slíkt. Hún minnir samt á að þriðjungur lyfja á rætur sínar í náttúrunni. Mjög góður og þverfaglegur rannsóknahópur hafi nú þegar myndast hér á landi í tengslum við plönturannsóknir. Það sé nauðsynlegt, til að mynda þurfi líffræðingar að koma að við plöntugreiningu, lyfjafræðingar við einangrun á einstaka efnum og svo sérfræðingar í lífvirkniprófum, á borð við sérfræðinga í krabbameinsfræðum eða ónæmisfræðum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira