Valtýr svarar Jóhönnu og sakar hana um árásir 23. mars 2011 10:54 Valtýr Sigurðsson.
Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari hefur á vefsíðu embættisins svarað Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem sagði hann fara með rakalausar dylgjur í sinn garð og hvatti hann til að skýra mál sitt. Forsaga málsins er sú að Valtýr gaf í skyn á dögunum í ræðu að forsætisráðherra hefði skipt sér með óeðlilegum hætti af störfum ákæruvaldsins með ýmsum ummælum sem hann taldi óábyrg. Að hans mati réðst Jóhanna á hann með óviðeigandi og tilefnislausum hætti. Í greininni í dag rifjar Valtýr upp að í maí 2009 hafi hann vikið sæti í öllum málum sem lutu að embætti sérstaks saksóknara. „Forsætisráðherra tilkynnti engu að síður í sjónvarpi 10. júní 2009 að mér bæri að víkja alfarið úr starfi. Þennan dag var ég staddur erlendis á fundi ríkissaksóknara Norðurlandanna sem fylgdust agndofa með aðförunum. Ég tel að árás á ríkissaksóknara og embætti hans með þessum hætti hafi verið bæði óviðeigandi og tilefnislaus," segir Valtýr meðal annars. Valtýr segir að hlutverk ákæruvaldsins sé að skapa öruggt samfélag í samvinnu við lögreglu. „Það var ábyrgðarhluti að grafa undan embætti ríkissaksóknara með því að skapa óþarfa tortryggni eftir að ríkissaksóknari hafði sjálfur tekið ákvörðun um að víkja sæti," segir Valtýr og segir að á þeim tíma hafi loft verið lævi blandið. „Ráðist var á heimili manna, málningu skvett á hús og bíla að næturlagi og fleiri skemmdarverk unnin. Fordæmingu stjórnvalda á því að menn tækju lögin í sínar hendur á þennan hátt skorti að mestu leyti. Í þjóðfélaginu ríkti ótti og tortryggni. Því var hætta því samfara að kalla yfir sig reiði stjórnvalda. Ég taldi hins vegar ekki rétt, eins og alkunna er, að verða við kröfu forsætisráðherra".Skapar þrýsting á settan ríkissaksóknara Þá víkur Valtýr að nýrra dæmi þar sem forsætisráðherra í sjónvarpsfréttum fagnaði niðurstöðu héraðsdóms í máli níumenninganna og taldi það mistök að ákært hefði verið með þeim hætti sem gert var. „Að þessu fann ég í ræðu minni og benti á að gagnrýnin væri óheppileg vegna þrýstings sem hún skapaði á settan ríkissaksóknara áður en áfrýjunarfrestur í málinu væri liðinn. Eins og sjá má í ræðunni var ekki minnst á að forsætisráðherra hafi beitt sér fyrir því að ekki var áfrýjað í málinu eins og gefið var í skyn í fréttinni." Að lokum segist Valtýr ekki sjá neina ástæðu til þess að draga til baka þau orð sín sem fram komu í ræðunni. „Þvert á móti taldi ég nauðsynlegt að gera þessu skil í ræðu minni í tengslum við umræðu um sjálfstæði ákæruvaldsins. Sú nauðsyn hefur ekki minnkað."Hér má sjá grein Valtýs í heild sinni.
Tengdar fréttir Ákæruvaldið láti orð ráðherra ekki hafa áhrif Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að saksóknarar eigi ekki að þurfa að láta ummæli ráðherra hafa nein áhrif á sig. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði í gær að Jóhanna hefði haft óbein áhrif á ákæruvaldið með ummælum sínum meðal annars um handtökur útrásarvíkinga og í máli nímenninganna. 19. mars 2011 16:25 Ríkissaksóknari tjáir sig ekki um kröfu forsætisráðherra Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, ætlar ekki tjá sig um kröfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að hann þurfi að rökstyðja mál sitt vegna ummæla hans um forsætisráðherra eða draga ummælin til baka. Hann sagði við fréttastofu í morgun að hann ætlaði að kynna sér það sem forsætisráðherra hefði sagt og síðan meta hvort ástæða væri fyrir sig að tjá sig um kröfu forsætisráðherra. 20. mars 2011 12:11 Valtýr gagnrýndi Jóhönnu fyrir bein afskipti af ákæruvaldinu Ríkissaksóknari gagnrýndi forsætisráðherra harðlega í morgun fyrir afskipti af störfum ákæruvaldsins og lögreglu. Þá sagði hann Evu Joly ekkert annað en stjórnmálamann. 18. mars 2011 12:09 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Ákæruvaldið láti orð ráðherra ekki hafa áhrif Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að saksóknarar eigi ekki að þurfa að láta ummæli ráðherra hafa nein áhrif á sig. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði í gær að Jóhanna hefði haft óbein áhrif á ákæruvaldið með ummælum sínum meðal annars um handtökur útrásarvíkinga og í máli nímenninganna. 19. mars 2011 16:25
Ríkissaksóknari tjáir sig ekki um kröfu forsætisráðherra Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, ætlar ekki tjá sig um kröfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að hann þurfi að rökstyðja mál sitt vegna ummæla hans um forsætisráðherra eða draga ummælin til baka. Hann sagði við fréttastofu í morgun að hann ætlaði að kynna sér það sem forsætisráðherra hefði sagt og síðan meta hvort ástæða væri fyrir sig að tjá sig um kröfu forsætisráðherra. 20. mars 2011 12:11
Valtýr gagnrýndi Jóhönnu fyrir bein afskipti af ákæruvaldinu Ríkissaksóknari gagnrýndi forsætisráðherra harðlega í morgun fyrir afskipti af störfum ákæruvaldsins og lögreglu. Þá sagði hann Evu Joly ekkert annað en stjórnmálamann. 18. mars 2011 12:09