Helmingi minna fé eytt í snjómokstur í Reykjavík 21. mars 2011 09:00 mokstur í grafarvogi Mokstursþjónusta hefur dregist saman um helming í Reykjavík á síðustu árum. fréttablaðið/pjetur
Reykjavíkurborg hefur eytt um 1,2 milljörðum króna í snjómokstur og aðra vetrartengda þjónustu á árunum 2008 til 2010. Veturinn 2008 kostaði þjónustan borgina um 500 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var óvenjumikill snjór það árið og var hann víða til trafala við samgöngur. Útgjöld við mokstur og annað því tengdu hafa verið minnkuð um helming síðan árið 2008. Heildarkostnaður við þjónustuna síðasta vetur var 280 milljónir og 375 milljónir veturinn 2009. Það sem af er vetrinum í ár, hefur borgin eytt tæpum 130 milljónum í mokstur og er talið ólíklegt að sú tala muni hækka mikið úr þessu. Er þetta fjórðungur af þeim kostnaði sem borgin varði í þjónustuna árið 2008. Guðbjartur Sigfússon, yfirverkfræðingur hjá Reykjavíkurborg, segir að þrátt fyrir mikla skerðingu í fjárveitingum til moksturs þá hafi það ekki bitnað mikið á þjónustu við borgarbúa. „Það hefur ekki borið mikið á kvörtunum. Við reynum að sinna þessu eftir því sem þörf er á,“ segir Guðbjartur. „Svo er það ekki fjárveitingin sem ræður alltaf, heldur er það veðráttan sem skiptir öllu máli.“ Akureyrarbær eyddi 65 milljónum króna í snjómokstur árið 2008. Heildarkostnaður við mokstur í bænum síðustu fjóra vetur hefur kostað 252 milljónir króna. Mokstur í desember einum í fyrra kostaði um 20 milljónir. Kostnaður Akureyrarbæjar við snjómokstur hefur verið frá 52 milljónum og upp í 72 milljónir hvert ár frá vetrinum árið 2007, en mestu var eytt í fyrra sé miðað við síðustu ár. Ástæðan fyrir auknum kostnaði er sögð einföld: Veðurfar. „Það var bara miklu meiri snjór,“ segir Helgi Már Pálsson, bæjartæknifræðingur hjá Akureyrarbæ. „Ég held að hér sé mjög vel mokað og er nokkuð viss um að þjónustustigið sé nokkuð hátt. En það eru auðvitað meira en 17 þúsund aðrir sérfræðingar í bænum sem eru allir ósammála mér.“ Samkvæmt Veðurstofunni voru 9 alhvítir dagar á Akureyri síðasta vetur.sunna@frettabladid.is
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Fleiri fréttir Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Sjá meira