Þarf að sannfæra Jóhönnu um að Vinstri grænir séu enn stjórntækir Höskuldur Kári Schram skrifar 21. mars 2011 19:06 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra
Ákvörðun Lilju og Atla breytir litlu um þingmeirihluta ríkisstjórnarinnar að mati þingmanna Samfylkingarinnar sem segja að atburðarásin í dag hafi ekki komið á óvart. Ákvörðun Lilju og Atla kom þingmönnum Samfylkingarinnar sem fréttastofa talaði við í dag ekki á óvart. Samfylkingarmenn hafa litið svo á að Lilja og Atli - og reyndar Ásmundur Einar Daðason líka - hafi sagt sig úr stjórnarliðinu þegar þau sátu hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlögin í desember á síðasta ári. Þessi ákvörðun í dag komi því ekki á óvart. Á pappírnum er ríkisstjórnin nú með þrjátíu og þrjá þingmenn, tuttugu samfylkingarmenn og þrettán vinstri græna. En meirihlutinn er þó ansi fallvaltur. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, er í fæðingarorlofi en hún hefur gagnrýnt stefnu ríkisstjórnarinnar í Magma málinu og tilheyrir órólegu deildinni innan þingflokksins. Jón Bjarnaon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er yfirlýstur andstæðingur aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hefur kallað eftir því að viðræðum verði slitið. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði af sér sem ráðherra árið 2009 útaf Icesave málinu en hann hefur einnig verið afar ósáttur með samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessir þrír þingmenn ásamt Ásmundi Einari Daðasyni valda því að ríkisstjórnin hefur afar hverfulan meirihluta í veigamiklum málum. Það kemur í hlut Steingríms J. Sigfússonar að sannfæra Jóhönnu um að Vinstri grænir séu enn stjórntækir og að ríkisstjórnin hafi getu til að takast á við þau erfiðu verkefni sem eru framundan.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira