Hreyfing: Pálmi baðst ekki afsökunar Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. mars 2011 19:34 séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðarkirkju.
Séra Pálma Matthíassyni sóknarpresti var vikið úr líkamsræktarstöðinni Hreyfingu fyrir framkomu í garð konu sem var íþróttakennari hjá stöðinni. Fjallað er um málið í DV í dag, en stjórnendur Hreyfingar tóku þá ákvörðun að biðja Pálma, sem hefur verið viðskiptavinur stöðvarinnar í 23 ár, um að láta af íþróttaiðkun hjá stöðinni. Málið varðar atvik sem átti sér stað í svokölluðum „Body Combat" æfingatíma sem byggir m.á spörkum og kýlingum án snertingar, en konan kenndi Body Combat hjá stöðinni. Í yfirlýsingu sem Pálmi sendi frá sér á föstudag segir hann að í hléi milli laga hafi hann verið að huga að þessari þjálfun og sparkað af gáleysi út í loftið. Þar segir: „Ég gætti ekki nægilega að umhverfi mínu, og hitti með ristinni á utan- og ofanverðan afturhluta kennarans. Þetta var algjört óviljaverk og enginn ásetningur til staðar. Að sjálfsögðu bað ég hlutaðeigandi strax velvirðingar og afsökunar og tíminn hélt áfram. Enginn frá Hreyfingu hefur rætt við mig vegna þessa og þykir mér það heldur nöturlegt eftir að hafa verið samfellt í 23 ár í viðskiptum hjá þessari líkamsræktarstöð og forverum hennar."Segja yfirlýsingar Pálma í ósamræmi við skýringar vitna Grímur Sæmundsen er stjórnarformaður Hreyfingar og Ágústa Johnson er framkvæmdastjóri. Í yfirlýsingu sem stjórnendur Hreyfingar sendu frá sér segir m.a: „Ekki var verið að iðka sparkæfingar í hóptímanum þegar viðskiptavinurinn sparkaði í rass starfsmannsins sem var að leiðbeina í tímanum." „Viðskiptavinurinn sem um ræðir baðst ekki afsökunar á framferði sínu." „Yfirlýsing viðskiptavinarins í fjölmiðlum er ekki í nokkru samræmi við upplifun viðkomandi starfsmanns, vitna eða annarra starfsmanna heilsuræktarstöðvarinnar." „Ákvörðun um lokun aðgangskortsins var tekin að vel athuguðu máli. Til grundvallar ákvörðuninni lá ennfremur fyrri samskiptasaga viðskiptavinarins gagnvart þessum starfsmanni heilsuræktarstöðvarinnar." Séra Pálmi sagði við fréttastofu í dag að hann vildi ekki tjá sig um málið umfram það sem kom fram í yfirlýsingunni. Hann vildi ekki svara því hvers vegna skýringar stjórnenda Hreyfingar væri í svona miklu ósamræmi við hans eigin upplifun af atvikinu.
Mest lesið Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira