Erlent

Stjórnvöld breyta sögu af drápi

Vígi Osama bin Laden hefur verið mótmælt víða. Hér mótmælir hópur manna í Multan í Pakistan.
Nordicphotos/AP
Vígi Osama bin Laden hefur verið mótmælt víða. Hér mótmælir hópur manna í Multan í Pakistan. Nordicphotos/AP
Bandarísk stjórnvöld hafa leiðrétt lýsingar á vígi sérsveitarmanna á hryðjuverkaleiðtoganum Osama bin Laden á mánudag. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort mynd af líki hans verði gerð opinber.

Ekki er rétt sem bandarísk stjórnvöld höfðu sagt að bin Laden hafi verið vopnaður þegar sérsveitarmenn bandaríska flotans króuðu hann af í húsi í borginni Abbottabad í Pakistan á mánudagsmorgun og skutu hann til bana. Ekki er heldur rétt sem fullyrt var strax eftir að hann var veginn að hann hefði reynt að skýla sér á bak við konu þegar hermennirnir höfðu fundið hann.

Bandarísk stjórnvöld hafa enga ákvörðun tekið um hvort mynd af líki bin Ladens verði gerð opinber. „Ég veit ekki hvað við ættum að græða á því að sýna slíka mynd,“ segir Mike Rogers, formaður leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins í samtali við fréttastofu ABC. „Samsæriskenningasmiðir munu skoða myndirnar og finna tíu atriði sem þeim þykir benda til þess að þær séu af einhverjum öðrum.“ - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×