Bylgjan má ekki spila lögin 16. febrúar 2011 13:00 Jóhann G. Jóhannsson. Tónlistarmaðurinn vill ekki að Bylgjan spili lögin sín.
Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson segir það ekki rétt hjá Pálma Guðmundssyni, framkvæmdastjóra dagskrársviðs 365 miðla, að Bylgjan geti spilað lögin hans þrátt fyrir að hann hafi bannað henni að gera það. Pálmi sagði við Fréttablaðið í gær að Jóhann hefði leigt höfundarréttinn að sínum lögum til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (Stefs) og því gæti Bylgjan spilað lögin áfram. Jóhann segir þetta ekki rétt, hann hafi ekki leigt höfundarrétt sinn til Stefs. Fyrirtækið hafi eingöngu séð um innheimtu á Stef-greiðslum sínum. „Pálmi hefur greinlega ekki kynnt sér ákvæði varðandi sæmdarrétt höfundar," segir Jóhann. Þar á hann við að ef höfundur telur skaðlegt fyrir sig eða meiðandi að ákveðinn aðili noti hans efni getur hann komið því á framfæri við Stef og í framhaldinu er brugðist við því. Þetta segir í 2. málsgrein 4. greinar höfundarlaga: „Óheimilt er að breyta verki höfundar eða birta það með þeim hætti eða í því samhengi að skert geti höfundarheiður hans eða höfundarsérkenni." Jóhann segir að þrátt fyrir orð Pálma um að hlutfall íslenskrar tónlistar sé 40% á degi hverjum á Bylgjunni sé gallinn sá að alltaf séu sömu lögin spiluð. Ofspilun sé stórt vandamál á stöðinni. „Miðað við þau viðbrögð sem ég hef fengið við banninu, sem ég vona að Bylgjan virði, þá tel ég að bannið hafi verið tímabært," segir Jóhann og bætir við að yfir 1.600 manns hafi lýst yfir stuðningi við það á netinu.- fb
Tengdar fréttir Lög Jóhanns G. gætu verið spiluð áfram á Bylgjunni Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín. Hann er ósáttur við tónlistarstefnu stöðvarinnar. Framkvæmdastjóri dagskrársviðs er undrandi á þessu útspili tónlistarmannsins. 15. febrúar 2011 14:30 Bannar Bylgjunni að spila tónlist sína Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur ákveðið að banna útvarpsstöðinni Bylgjunni að spila tónlist frá og með þriðjudeginum í næstu viku. Jóhann segir að höfundaréttur sé eignaréttur og því geti höfundur tekið ákvörðun um hvort hann leyfi afnot af verkum sínum eða ekki. 14. febrúar 2011 12:17 Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Fleiri fréttir Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Sjá meira
Lög Jóhanns G. gætu verið spiluð áfram á Bylgjunni Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín. Hann er ósáttur við tónlistarstefnu stöðvarinnar. Framkvæmdastjóri dagskrársviðs er undrandi á þessu útspili tónlistarmannsins. 15. febrúar 2011 14:30
Bannar Bylgjunni að spila tónlist sína Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur ákveðið að banna útvarpsstöðinni Bylgjunni að spila tónlist frá og með þriðjudeginum í næstu viku. Jóhann segir að höfundaréttur sé eignaréttur og því geti höfundur tekið ákvörðun um hvort hann leyfi afnot af verkum sínum eða ekki. 14. febrúar 2011 12:17