Petr Cech bjargaði Chelsea og varði víti - Eiður Smári með fína takta Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 14. febrúar 2011 22:08
Petr Cech var hetja Englandsmeistaraliðs Chelsea þegar hann varði víti á lokamínútunni gegn Fulham. Cech sá við bandaríska landsliðsmanninum Clint Dempsey sem tók vítið en ekkert mark var skorað í leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inná sem varamaður á 82. mínútu og hann var greinilega staðráðinn í því að sýna hvað í honum býr. Chelsea er í fimmta sæti með 45 stig, Tottenham er þar fyrir ofan með 47, Manchester City í því þriðja með 49. Manchester United er efst með 57 og Arsenal er með 53 í öðru sæti. Fulham er í 12. sæti með 31 stig. David Luiz, sem nýverið var keyptur til Chelsea fyrir 25 milljónir punda, braut á Dempsey þegar þrjár mínútur voru liðnar af uppbótartímanum. Eiður Smári lét strax finna fyrir sér með hörkutæklingu sem minnti um margt á tilþrif knattspyrnustjórans Mark Hughes á árum áður. Florent Malouda fékk að kenna á því og var Eiður reyndar heppinn að fá ekki gult spjald fyrir þessi tiþrif. Eiður sýndi svipaða takta örskömmu síðar og hann hefur eflaust vakið athygli knattspyrnustjórans Hughes á þessum stutta tíma sem hann fékk að spreyta sig. David Luiz og Andrew Johnson.Nordic Photos/Getty Images Eins og áður segir náði Dempsey ekki að skora úr vítaspyrnunni en Danny Murphy vítaskytta liðsins var farinn af leikvelli. Eiður var mættur í vítateiginn þegar boltinn barst út í teiginn eftir að Cech hafði varið. Dempsey ákvað hinsvegar að sýna sparihliðarnar og reyndi að skjóta á markið úr bakfallsspyrnu - og sú tilraun var skelfileg. Eiður var í mun betra færi og hefði eflaust viljað fá boltann í þessu færi gegn sínu gamla liði. Fernando Torres var í fremstu víglínu hjá Chelsea en hann náði sér ekki á strik og hann á enn eftir að skora fyrir Chelsea eftir að hann var keyptur fyrir rúma 9 milljarða kr. frá Liverpool. Torres fór af leikvelli á 62. mínútu og Didier Drogba kom inná sem varamaður. Staðan í deildinni.
Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Ísland á heimavelli og leikur meistara meistaranna Sport „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira