Yfirlýsingar Jóhönnu ætlaðar til heimabrúks 30. janúar 2011 20:58 Björn Valur Gíslason, þingmaður VG. Hann átti sæti í sáttanefnd ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórnunarkerfið. Mynd/GVA
Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segir að forsætisráðherra hafi venju samkvæmt hnýtt í VG á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar í gær. Hann segist gera sér grein fyrir að slíkur málflutningur sé meira „ætlaður til heimabrúks en annars svo ég læt það ekki pirra mig að neinu marki." Yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur virðast þó eitthvað pirra Björn Val því í pistli á heimasíðu sinni sendir hann Samfylkingunni væna sneið vegna ályktunar flokksins um sjávarútvegsmál. Björn Valur segir að leið flokksins feli í sér upplausn og gjaldþrot.Kvótinn verði innkallaður Um ríkisstjórnarsamstarfið sagði Jóhanna meðal annars að þeir stjórnarliðar sem líti á stjórnarsáttmálann sem plagg sem ekki þurfi að taka mark á væru að leika sér að eldinum. Jafnframt sagði hún óróleika innan VG hafa skaðað ríkisstjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem flokksstjórnin beinir því til Jóhönnu að hún beiti sér á Alþingi fyrir því að samstaða náist um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um að aflaheimildir verði innkallaðar t.d. á 20 árum og að heimildirnar verði boðaðar til endurúthlutunar gegn gjaldi.Segir leið Samfylkingarinnar leiða til gjaldþrota „Allt er þetta gott og gilt," segir Björn Valur og bætir við: „Sjálfur hélt ég að ný fiskveiðistjórn yrði mótuð á þeim niðurstöðum sem Sáttanefnd ríkisstjórnarinnar komst að á síðasta ári enda var það markmið hennar að móta tillögur í þeim efnum." Þá segir þingmaðurinn að í bókun fulltrúa stjórnarflokkanna í umræddri nefnd komi fram að ekki hafi verið stuðningur við það í nefndinni að fara þá leið sem Samfylkingin leggi nú til að kosið verði um í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þau gögn sem nefndin aflaði sér um málið benda til þess að innköllunarleið Samfylkingarinnar muni leiða til mikillar upplausnar og gjaldþrota í sjávarútvegi og valda miklum usla í íslensku efnahagslífi," segir Björn Valur. Fulltrúar stjórnarflokkana hafi því lagt til að farin verði önnur leið að sama marki sem skapi sjávarútveginum góðan rekstrargrunn til langs tíma gegn tilteknum ströngum skilyrðum og gjaldi fyrir nýtingarréttinn.Spurning fyrir kjósendur Björn Valur segir að í þessu ljósi megi ætla að ef af þjóðaratkvæðagreiðslu yrði eins og flokksráð Samfylkingarinnar leggi til gæti spurningin sem lögð yrði fyrir kjósendur hljómað með eftirfarandi hætti: „Samkvæmt niðurstöðum nefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða (Sáttanefndar) gæti fyrning aflaheimilda á 20 árum, líkt og Samfylkingin leggur til að gert verði, leitt til fjöldagjaldþrots í sjávarútvegi um land allt. Ertu fylgjandi eða andvíg/ur þeirri leið?"
Tengdar fréttir Óskynsamlegt að hræra í innyflum annarra Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir óskynsamlegt að formenn flokka séu að blanda sér í innri flokksmál hvor hjá öðrum. Ekki eigi að „hræra í innyflum hvers annars.“ 30. janúar 2011 11:35 Órólega deildin leikur sér að eldinum Þeir stjórnarliðar sem líta á stjórnarsáttmálann sem plagg sem ekki þurfi að taka mark á eru að leika sér að eldinum, að mati Jóhannu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún segir óróleika innan VG hafa skaðað ríkisstjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. 29. janúar 2011 13:59 Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Sjá meira
Óskynsamlegt að hræra í innyflum annarra Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir óskynsamlegt að formenn flokka séu að blanda sér í innri flokksmál hvor hjá öðrum. Ekki eigi að „hræra í innyflum hvers annars.“ 30. janúar 2011 11:35
Órólega deildin leikur sér að eldinum Þeir stjórnarliðar sem líta á stjórnarsáttmálann sem plagg sem ekki þurfi að taka mark á eru að leika sér að eldinum, að mati Jóhannu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún segir óróleika innan VG hafa skaðað ríkisstjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. 29. janúar 2011 13:59