Einn skotárásarmannanna tekur amfetamín daglega Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. desember 2011 16:46 Lögreglan vaktar Bryggjuhverfið eftir að skotárásin átti sér stað.
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni vegna manndrápstilraunar í Bryggjuhverfi til áttunda desember næstkomandi. Maðurinn segist nota amfetamín og Mogadon daglega. Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir manninum hjá lögreglu eftir að hann var handtekinn. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir manninum þann 29. nóvember síðastliðinn. Maðurinn situr, ásamt öðrum manni, í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar sem var gerð þann 18. nóvember síðastliðinn. Skotið var á rúður bíls en í bílnum voru tveir menn. Annar þeirra hafði mælt sér mót við einn þeirra sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni. Maðurinn hefur neitað allri aðild að málinu við skýrslutöku hjá lögreglu. Hann segist hins vegar ekki geta gert grein fyrir ferðum sínum 18. nóvember með öðrum hætti en að hafa verið á „þvælingi." Hann kveðst daglega nota amfetamín og Mogadon og kveðst ekki muna hvar hann hafi verið staddur um átta þetta kvöld. Tilkynningin um skotárásina barst lögreglu rétt eftir klukkan átta. Samkvæmt upplýsingum úr lyfjabókinni hefur Mogadon svæfandi, kvíðastillandi og vöðvaslakandi verkun. Amfetamin er hins vegar örvandi efni. --------------- Í frétt sem birtist upphaflega á vefnum þann 2. desember var fullyrt að gæsluvarðhald yfir umræddum manni hafi verið framlengt í dag. Það er rangt. Hæstiréttur var að staðfesta gæsluvarðhald yfir þessum umrædda manni. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi hins vegar gæsluvarðhald úrskurð yfir félaga mannsins, sem grunaður er um að hafa verið í vitorði með honum, í dag til áttunda desember. Þeir hafa því báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til áttunda desember næstkomandi.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira