Sannir Finnar sexfölduðu fylgi sitt 18. apríl 2011 12:09 Timo Soini, leiðtogi Sannra Finna. MYND/AFP
Allt er á öðrum endanum í finnskum stjórnmálum eftir að ríkisstjórnin féll og þjóðernisflokkurinn Sannir Finnar nærri sexfaldaði þingmannafjölda sinn í kosningum í landinu í gær. Leiðtogi flokksins segir mikilvægt að Evrópa virði vilja finnsku þjóðarinnar. Timo Soini leiðtogi Sannra Finna var í skýjunum þegar úrslitin lágu fyrir en flokkur hans varð þriðji í kosningunum og náði inn 39 þingmönnum af þeim 200 sem sæti eiga á finnska þinginu. Sannir Finnar lögðu áherslu á takmörkun innflytjenda í kosningabaráttu sinni og gerðu út á andstöðu við Evrópusambandið. Núverandi ríkisstjórnarflokkar eru allir fylgjandi Evrópusamstarfi en margir Finnar eru óánægðir með björgunarpakka ESB til Portúgals og fleiri ríkja. Í ljósi þess sagði Soini mikilvægt að Evrópa myndi virða vilja finnsku þjóðarinnar og lagði áherslu á að flokkur sinn væri ekki hægri flokkur. Sigurvegari kosninganna var hinsvegar íhaldsflokkurinn Þjóðarbandalagið sem lítur hýru auga til frekari Evrópusamvinnu. Margir spá því að Jyrki Katainein leiðtogi Þjóðarbandalagsins verði næsti forsætisráðherra landsins en þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn er sá stærsti á finnska þinginu frá stofnun hans. Finnskir fjölmiðlar hafa veirð yfirlýsinglaðir í morgun og til að mynda stóð orðið BYLTING á forsíðu blaðsins Aamulethi. Þá töluðu menn um að fögnuður Sannra -Finna hefði verið fögnuður gleymdrar þjóðar. Árangur Sannra Finna er ekki síst athyglisverður í ljósi þess að í kosningunum árið 2007 hlaut flokkurinn eingunigs fjögurra prósenta fylgi, en fékk nú næstum 20%. Andstaða flokksins við Evrúna er talinn hafa aflað honum nokkurra vinsælda, en skoðanakannanir í aðdraganda kosninganna höfðu bent til þess að ríkisstjórnin myndi naumlega halda velli.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Sjá meira