Maður í hlaupagalla stal tölvu á Hlöðunni 7. desember 2011 05:00 Anna Guðný segist ekki ætla að kæra þjófnaðinn verði tölvunni skilað á Þjóðarbókhlöðuna fyrir helgi. fréttablaðið/stefán „
Hann var um sjötugt, í fjólubláum jogginggalla, með svartan bakpoka og grátt hár. Hann sést mjög vel á upptökunni,“ segir Anna Guðbjörg Bjarnadóttir, 22 ára lögfræðinemi við Háskóla Íslands. Tveimur fartölvum hefur verið stolið af Önnu á Þjóðarbókhlöðunni á síðustu þremur mánuðum. Tjónið hleypur á hundruðum þúsunda, en tölvurnar voru báðar af gerðinni MacBook. Fyrri tölvunni var stolið af skrifborði Önnu fyrir um þremur mánuðum þegar hún brá sér frá í hádegismat. Engar myndavélar vöktuðu svæðið. Seinni tölvunni var stolið á sunnudaginn síðastliðinn þegar hún skildi hana eftir á hillu á neðstu hæð Þjóðarbókhlöðunnar á meðan hún skrapp út fyrir með vinkonum sínum. Anna skildi við tölvuna þar í nokkrar mínútur og þegar hún kom til baka var hún horfin. Öryggismyndavél náði þjófnum á mynd og að sögn Önnu sést þar eldri maður í hlaupagalla sem kemur inn í bygginguna, lítur í myndavélina, gengur að horninu þar sem tölvan var geymd og gengur út. „Ég var komin hálfri mínútu eftir að hann tók hana en ég var í svo miklu panikki að ég áttaði mig ekki á því að líta út eftir þjófnum,“ segir Anna. Ólafur Guðnason, húsvörður í Þjóðarbókhlöðunni, segir allt of mikið um þjófnaði á svæðinu. Þrátt fyrir öryggismyndavélar og viðvaranir sé allt of algengt að nemendur skilji eigur sínar eftir eftirlitslausar. Í seinna tilviki Önnu hafi þjófurinn vissulega náðst á mynd en ekki sé hægt að sýna myndbandið opinberlega sökum persónuverndarlaga. „Ég mundi gjarnan vilja sýna upptökuna en mér er bara ekki heimilt að gera það,“ segir Ólafur. Hann segir það hafa gerst að fólk komi inn í bygginguna gagngert til þess að stela. „Því miður er allt of mikið um þetta,“ segir hann. „Ein tölva er of mikið þar sem oft eru heilu ritgerðirnar þar inn á. Svona atburðir eru vissulega ólán.“ Anna segist ekki ætla að kæra þjófnaðinn, verði tölvunni skilað á Þjóðarbókhlöðuna fyrir helgi. Hún heitir þeim sem finnur tölvuna fundarlaunum. „Ég er búin að tapa tveimur tölvum, með öllum glósunum mínum og námsefni,“ segir Anna. „Sú seinni er glæný og kostaði tvö hundruð þúsund krónur. Ég mun gera allt til að fá hana aftur.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Sjá meira