Erlent

Frelsuð úr kynlífsþrælkun

Lögreglan í Kaupmannahöfn bjargaði í gær nítján ára litháískri stúlku sem hafði verið neydd til að stunda vændi. 36 ára samlandi hennar var handtekinn og verður kærður fyrir mansal.

Stúlkan var ginnt til að yfirgefa land sitt viku fyrr og var flutt til Kaupmannahafnar þar sem henni var komið fyrir í niðurníddu húsnæði, lokuð inni og seld vændiskaupendum.

Stúlkan komst þó loks á netið þar sem hún náði sambandi við vin sinn sem gerði lögreglunni viðvart. Út frá lýsingum hennar réði danska lögreglan í staðsetningu og frelsaði hana.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×