Gaddafi reynir að lægja öldurnar með því að lofa launahækkunum 25. febrúar 2011 12:07
Stjórnvöld í Líbýu lofa nú almenningi peningagreiðslum og launahækkunum í von um að róa uppreisnaröldu sem gengur yfir landið. Uppreisnin er runnin undan rifjum al Kaída segir Gaddafi einræðisherra. Ríkissjónvarpið í Líbýu tilkynnti að opinberir starfsmenn í ákveðnum geirum fái allt að 150 prósenta launahækkun. Þá eiga allar fjölskyldur von á 50 þúsund króna greiðslu auk þess sem lækka á verð á matvælum og öðrum nauðsynjavörum.Þetta er ein af fjölmörgum heldur örvæntingarfullum tilraunum stjórnvalda til að róa almenning sem hefur í flestum borgum landsins risið upp og tekið völdin í eigin hendur. Borgir á borð við Tobruk og Bengazi eru nú á valdi fólksins en þar hafa hópar og nefndir verið skipaðar til að sjá um öryggismál, heilbrigðismál og annað í þeim dúr. Það er helst í höfuðborginni Tripoli og í nágrenni hennar sem Gaddafi hefur tekist að berja niður uppreisnaröflin. Það hefur verið gert með harðri hendi. Til að mynda í borginni Az Zawiyah, 150 kílómetrum frá Trípóli, en í gær komu hersveitir hliðhollar Gaddafi inn í borgina og stráfelldu mótmælendur. Vitni sem töluðu við fréttastöðina Al Jazeera í gær sögðu að 100 manns hefðu fallið, allt mótmælendur sem höfðu komið saman á torgi í borginni. Mótmælendur eru hins vegar ekki af baki dottnir og hafa skipulagt fjöldamótmæli í dag, sem eiga vera þau fjölmennustu hingað til. Stjórnvöld brugðust við með því að senda fjölda smáskilaboða þar sem fólk er hvatt til að halda sig heima við.En þau létu ekki þar við sitja og lofuðu þeim sem áframsenda skilboðin inneign á símkortið sitt.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Sjá meira