Ferguson: Annaðhvort Manchester United eða Arsenal verður meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2011 18:15 Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að baráttan um Englandsmeistaratitilinn standi núna bara á milli United og Arsenal. Hann sagði þetta á blaðamannafundi í dag fjórum dögum áður en United heimsækir Englandsmeistara Chelsea á Stamford Bridge. Manchester United er með eins stig forskot á Arsenal en á auk þess leik inni á lærisveina Arsene Wenger sem er á móti Wigan um helgina. Arsenal vann Stoke á miðvikudaginn og spilar til úrslita um enska deildarbikarinn á sunnudaginn. Efstu liðin í deildinni eiga 11 eða 12 leiki eftir og Manchester United er með átta stiga forskot á Manchester City sem er í 3. sæti. Tottenham er síðan tíu stigum á eftir United og Chelsea er heilum tólf stigum á eftir toppliðinu. „Það er venjan að tvö lið stingi af þegar kemur að lokum tímabilsins og þannig lítur þetta út núna. Ég held að þetta verði barátta milli okkar og Arsenal," sagði Ferguson. Chelsea spilar ekki um helgina og því getur United, með sigri á Wigan, verið búið að ná upp fimmtán stiga forskot á Lundúnaliðið þegar United-menn mæta á Brúnna á þriðjudaginn. „Það verður ekki auðvelt fyrir Chelsea að koma til baka eftir að hafa dregist svona mikið aftur úr. Ég hef sagt það margoft að liðið með mesta stöðugleikann myndi vinna deildina. Þess vegna legg ég áherslu á að við höldum okkar striki og pössum upp á að missa ekki einbeitinguna," sagði Ferguson.
Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Þjálfari Króata ósáttur við blaðamann Vísis Fótbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Supercross Atlanta úrslit. Sport Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Styrkir til VÍK Sport Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira