Eiður Smári: Bull í Tony Pulis Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. júní 2011 18:45
Eiður Smári Guðjohnsen segir lítið hafa verið að marka ummæli Tony Pulis, knattspyrnustjóra Stoke, um hversu fá tækifæri Eiður fékk frá honum. Eiður Smári er nú að undirbúa sig fyrir landsleikinn gegn Dönum á Laugardalsvelli um helgina en hann var ekki valinn í liðið sem mætti Kýpur í mars. Eiður var í viðtali við Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamann sem spurði hvort að hann hafi verið sáttur við þá ákvörðun landsliðsþjálfarans. „Nei, ekkert endilega. Maður verður að virða ákvörðun þjálfarans og er ekkert við því að gera," sagði Eiður Smári sem segist þó hafa verið í fínu standi. Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Ég hef verið leikfær og í formi síðan í haust, þegar ég var búinn að vera hjá Stoke í 4-5 vikur. Allt þetta bull sem ég hef lesið bæði frá Tony Pulis og öðrum eru bara afsakanir fyrir því að nota mig ekki." „Ég er þar með ekki að segja að Óli hafi notað sömu afsakanir sjálfur en mér finnst allt of mikið hafa verið gert út þessu." „Ég kom fjórum sinnum inn á sem varamaður hjá Stoke, síðast um miðjan október. Þá er eitthvað meira í stöðunni en bara leikform - það er eitthvað meira á bak við það." Hann vildi þó ekki fara nánar út í þær ástæður. „Ég hef ekki hugmynd um þær og ætla ekki að eyða tíma í það. Satt best að segja var þetta erfitt tímabil en það var ágætt að komast að hjá Fulham og spila síðustu leikina í deildinni og koma sér aftur af stað." Eiður er nú með samningstilboð frá Stoke sem hann er að skoða. „Það eru nokkrir hlutir í stöðunni og ég ætla að taka mér minn tíma. Fyrst ætla ég að einbeita mér að þessum leik núna og sjá svo til hvað gerist."
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira