Fótbolti

Steinþór Freyr með rándýrt mark - myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinþór Freyr Þorsteinsson
Steinþór Freyr Þorsteinsson Mynd. / Heimasíða Sandnes Ulf
Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður Sandnes Ulf, skoraði frábært mark er lið hans sigraði Bryne, 5-3, í miklum markaleik í norsku 1. deildinni.

Leikurinn fór fram á Bryne Stadion, heimavelli Bryne, en með sigrinum styrkti Sandnes Ulf stöðu sína á toppi deildarinnar en félagið er með 43 stig, fimm stigum á undan Hønefoss sem eru í öðru sæti.

Steinþór Freyr gerði fjórða mark gestanna tuttugu mínútum fyrir leikslok og kom þeim yfir 4-3, Sandnes Ulf gerðu síðan útum leikinn stuttu síðar.

Hér að neðan má sjá myndband af öllum mörkum leiksins, en mark Steinþórs kemur eftir rúmlega þrjár mínútur.



Myndbandið.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×