Landsliðsþjálfari Ástrala segir Kewell að koma sér í form Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. ágúst 2011 19:45 Harry Kewell í landsleik með Ástralíu. Nordic Photos/AFP
Harry Kewell þarf að hraða leit sinni að nýju félagi miðað við nýjustu skilaboð sem landsliðsþjálfari Ástrala sendi honum. Kewell var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir vináttuleik gegn Wales. Landsliðsþjálfarinn segir hann ekki í formi. Kewell, sem er 32 ára, var á mála hjá Galatasaray á síðustu leiktíð en samningur hans við tyrkneska félagið rann út í vor. Í fyrstu leit út fyrir að hann myndi skrifa undir hjá félagi í áströlsku deildinni en umboðsmaður kappans dró úr þeim fréttum fyrir skemmstu. Holger Osieck, landsliðsþjálfari Ástrala, valdi Kewell ekki í landsliðshóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Wales 10. ágúst. Skiljanlegt myndu margir segja þar sem Kewell er án félags. Kollegi Kewell, Lucas Neill, var hins vegar valinn þrátt fyrir að vera félagslaus. „Það er smávegis munur á þeim. Annar þeirra er í fínu formi en hinn ekki,“ sagði Osieck. Undankeppnin fyrir HM 2014 hefst hjá Áströlunum í upphafi september þegar þeir taka á móti Tælandi. „Lucas hefur lagt hart að sér en Harry er ekki í mjög góðu formi. Hann er klárlega ekki í standi til þess að spila núna,“ sagði Osieck um Kewell sem verið hefur lykilmaður í landsliði Ástrala í áratug. Kewell hefur spilað 54 landsleiki fyrir Ástrali og spilað á tveimur heimsmeistaramótum. Osieck bindur vonir við að Kewell vinni í sínum málum. „Við vitum öll hvað Harry getur gert fyrir landsliðið. Ég vona svo sannarlega að hann verði kominn í form fyrir undankeppnina,“ sagði Osieck.
Fótbolti Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Onana frá næstu vikurnar Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Segir hitann á HM hættulegan Belgar kveðja EM með sigri Spánn áfram með fullt hús stiga Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Fyrst Íslendinga til að skora og leggja upp í sama leik á EM EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Sjá meira