Capello: Eins og við séum búnir að missa sjálfstraustið á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2011 09:45 Wayne Rooney í leiknum í gær. Mynd/Nordic Photos/Getty
Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, viðurkenndi að sínir menn hafi haft heppnina með sér í 1-0 sigrinum á Wales á Wembley í gær. Eftir leikinn vantar enska landsliðinu aðeins eitt stig til þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram næsta sumar. „Við vorum heppnir. Þeir gerðu stór mistök í markinu sem við nýttum okkur. Við spiluðum ekki vel síðustu fimmtán mínúturnar í leiknum, náðum aldrei almennilegum tökum á leiknum og pressuðum aldrei boltann. Við spiluðum skyndisóknabolta í hægagangi," sagði Capello. „Liðið spilaði vel í 20 mínútur í fyrri hálfleik en við verðum að spila vel allan leikinn. Stundum skipta úrslitin samt mestu máli og mótherjar okkar á Wembley koma alltaf hingað með mikið hugrekki og mikinn kraft," sagði Fabio Capello. „Það er samt eins og við séum búnir að missa sjálfstraustið á Wembley," sagði Capello og talaði um að enska landsliðið hafi spilað mjög vel á Wembley í síðustu undankeppni. Ashley Young tryggði enska liðinu þrjú stig og Capello hrósaði þessum skemmtilega leikmanni Manchester United. „Ashley Young er mjög góður leikmaður. Hann var góður þegar hann byrjaði hjá mér og nú er hann búinn að spila fyrir mig í þrjú eða fjögur ár. Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur og hreyfir sig mjög vel með og án bolta," sagði Capello.
Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Fleiri fréttir Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund Allegri líklegastur til að taka við af Conte Mikið álag á Messi en ekki alvarleg meiðsli Dembélé tapaði atkvæðagreiðslu en var samt verðlaunaður Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Íranska liðið spilar í Bandaríkjunum en þarf að gista í Mexíkó Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Sjá meira