Nýtt frumvarp um RÚV lagt fram á vormánuðum 24. mars 2011 08:00 Ríkisútvarpið Í gær rann út frestur íslenskra stjórnvalda til að svara ESA vegna aðskilnaðar samkeppnisrekstrar og almannaþjónustu hjá RÚV.Fréttablaðið/Vilhelm
Stjórnvöld hafa farið fram á frest til aprílloka til að gera þær úrbætur á rekstar- og lagaumhverfi Ríkisútvarpsins (RÚV) sem ESA, eftirlitsstofnun EFTA fór fram á í síðasta mánuði. Beiðni stjórnvalda og skýringar á stöðu málsins voru sendar ESA í gær. Í ákvörðun ESA frá 9. febrúar síðastliðnum er kveðið á um margvíslegar breytingar á lagaumhverfi og fjármögnun RÚV. Til að mynda er kveðið á um aðskilnað samkeppnisreksturs og almannaþjónustu í starfsemi RÚV. Þannig megi stofnunin ekki nota almannafé til þess að beita sér í samkeppnishamlandi aðgerðum á markaði. Í frétt Fréttablaðsins um málið 11. febrúar sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri tilmæli ESA engin áhrif hafa á rekstur RÚV. Þau sneru að stjórnvöldum en ekki stofnuninni. „Ef það eru einhverjir tæknilegir misbrestir hjá okkur verða þeir lagaðir, en þetta hefur ekkert með daglegan rekstur RÚV að gera," sagði hann þá. Þegar hefur verið komið til móts við sumar athugasemdir ESA, svo sem með því að færa eignarhald RÚV frá mennta- og menningarmálaráðuneyti til fjármálaráðuneytisins, sem í gær svaraði ákvörðun ESA. Mennta- og menningarmálaráðuneytið fer eftir sem áður með eftirlit með útsendingarstarfsemi, þótt skilið hafi verið á milli þess eftirlits og eignarhaldsins. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að í bréfinu til ESA stöðu málsins lýst. „Í raun og veru er sagt að við séum ekki búin að uppfylla tilmælin en vísað til þess að fjölmiðlafrumvarpið sé ennþá í umræðu," segir hún, en það var afgreitt úr menntamálanefnd þingsins á þriðjudag og verður fljótlega á dagskrá þingsins. „Í því er komið til móts við ákveðnar athugasemdir, svo sem með því að setja á laggirnar þessa fjölmiðlanefnd sem á að hafa eftirlit með framkvæmd RÚV á útvarpsþjónustu í almannaþágu." Auk þess segir Katrín í bréfinu vísað til nefndar sem hún stofnaði til að fara yfir lögin um Ríkisútvarpið ohf. og á að skila af sér frumvarpsdrögum í maí. Stefnt er að því að breyta lögunum á yfirstandandi þingi.„Í erindisbréfinu er sérstaklega kveðið á um að nefndin skoði þennan aðskilnað sem kveðið er á um milli samkeppnisreksturs og útvarpsreksturs í almannaþágu," segir hún, en nefndin var skipuð fyrir um hálfum mánuði. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira