Forvarnir og árvekni lykilatriði málsins 24. mars 2011 17:00 Páll Bragi Kristjónsson hefur náð sér að fullu eftir að hafa greinst með ristilkrabbamein árið 2009. Hann fagnar Mottumars-átakinu og segir forvarnir skipta öllu máli.Fréttablaðið/GVA
Mottumars-átak Krabbameinsfélags Íslands, þar sem vakin er athygli á krabbameini í körlum, hefur gengið vel það sem af er mánuðinum. Lykilatriði í átakinu eru forvarnir og árvekni þar sem greiningartími skiptir höfuðmáli. Páll Bragi Kristjónsson, fyrrverandi útgefandi, er til vitnis um mikilvægi þess að greinast snemma því að hann hefur unnið bug á ristilkrabbameini. „Ég hafði aldrei kennt mér meins en fór reglulega í læknisskoðun um árabil," segir Páll Bragi í samtali við Fréttablaðið. „Svo var það fyrir tilviljun að ég tók þátt í heilsuverkefni í háskólanum sumarið 2009 þar sem tekin var blóðprufa. Prufan fer svo til heimilislæknisins míns, sem tekur eftir að blóðgildið hjá mér hefur fallið nokkuð." Páll Bragi segir það hafa komið sér á óvart þar sem hann hafi verið í góðu formi og leikið golf á hverjum degi þetta sumar. „Læknirinn sendir mig þó í fjöldann allan af rannsóknum, en ekkert kom út úr þeim. Svo var það í einni skoðun sem ég minnist á ákveðið einkenni og við það kveikir hún á perunni og sendir mig í ristilspeglun." Þar kom í ljós að Páll Bragi var með fullburða krabbamein á tveimur stöðum í ristlinum og það þriðja á byrjunarstigi. Ristilkrabbamein er oft erfitt viðfangs. „Ef læknirinn hefði ekki tekið svo vel á málinu og ekki látið rannsaka mig til þrautar, þótt ég fyndi ekki fyrir neinu, hefði meinið fengið að þróast áfram þar til það hefði komist á verra stig." Páll fór í aðgerð í lok árs 2009 þar sem allur ristillinn úr honum var fjarlægður, en svo vel vildi til að meinið hvarf alfarið við það og Páll þurfti ekki að gangast undir lyfjameðferð. Hann hefur nú náð sér að fullu. „Ég varð samt mjög veikur í kjölfar aðgerðarinnar, en ákvað eftir áramótin að drífa mig í líkamsrækt og var kominn út á golfvöll í maí." Páll segir að vissulega séu svona alvarleg veikindi erfið lífsreynsla. Þó megi ekki leggja árar í bát þar sem lífið geti boðið upp á fleira. Annar lærdómur, og ekki síðri, sem megi draga af hans sögu sé sá að árvekni og forvarnir skipta lykilmáli. Mottumars sé því nauðsynlegt átak til að undirstrika það. „Eftir mína reynslu, er ég auðvitað þakklátur öllum þeim sem taka þátt í að leggja verkefninu lið og vekja á því athygli." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira