Fróaði sér fyrir framan þrjár skólastúlkur 24. mars 2011 07:30 Þrjár stúlkur í tíunda bekk urðu fyrir ömurlegri reynslu í vikunni.
Þrjár stúlkur úr tíunda bekk í Engjaskóla urðu fyrir því á heimleið úr skólanum á þriðjudagsmorgun að ungur maður sem þeir mættu á göngustíg hafði í frammi kynferðislega tilburði við þær. Maðurinn beraði kynfæri sín og fróaði sér fyrir framan þær. Ein stúlknanna greip þá til farsíma síns og þegar maðurinn sá það lét hann sig hverfa á brott. Skólastjóri Engjaskóla, Jóhanna S. Vilbergsdóttir, sendi forráðamönnum barnanna í skólanum viðvörun vegna þessa atburðar í gær. „Stúlkurnar voru á leið niður göngustíg norðan við skólann sem liggur niður að söluturni, þegar maðurinn varð fyrir þeim,“ útskýrir Jóhanna. Stúlkurnar gátu lýst manninum, sem þær segja að sé um tvítugt, meðalmaður að hæð, klæddur grænni hettupeysu og svartri úlpu með mjög dökkar augnbrúnir. „Við höfum komið málinu til lögreglu en biðjum ykkur um að ræða við börn ykkar um að hafa varann á í hvívetna og láta vita strax ef þau verða einhvers vör,“ segir í viðvörunarskeytinu. Jóhanna segir fólk á varðbergi vegna manna sem virðist hafa stundað áreiti í grennd við skólann. Fyrir rúmri viku hafi tveir menn á svörtum bíl reynt að lokka tvo drengi upp í bílinn í Engjahverfi. Síðastliðinn föstudag hafi tveggja manna á dökkum bíl aftur orðið vart á bílastæði í hverfinu þar sem þeir reyndu að tæla lítinn dreng upp í bílinn með Playstation-3 tölvu. Auk þessa hafði áður verið tilkynnt þrisvar um menn á dökkum bíl sem reyndu að lokka börn upp í hann með gylliboðum. - jss
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira