Láta allt vera nema verðmæta skartgripi 24. mars 2011 07:00 Innbrotsfaraldur Þjófarnir sem eru að verki þessa dagana eru á ferðinni eftir hefðbundinn vinnutíma fólks, að sögn lögreglufulltrúa á höfuðborgarsvæðinu.
Innbrotsþjófar, sem einkum eru á höttunum eftir dýrum skartgripum, hafa á undanförnum vikum herjað á tiltekin hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla segir um faraldur að ræða. Meðal annars var dýrmætum ættagripum stolið frá konu sem Fréttablaðið ræddi við í gær. Á undanförnum mánuði hafa um tuttugu innbrot verið framin í einbýlishúsahverfum í Hafnarfirði, Kópavogi og Grafarvogi. Hafa þjófarnir aðeins stolið dýrum skartgripum og ekki skilið eftir sig verksummerki, að skemmdum við innbrotin undanskilum. Í sumum hverfanna þar sem fólk hefur orðið fyrir barðinu á innrbotsþjófum ætla íbúar að taka sig saman og koma á fót öflugri nágrannavörslu. „Íbúar við götuna sem ég bý í ætla að efna til fundar með lögreglu og tryggingafyrirtækjum til að fá upplýsingar um viðbrögð gegn þessum innbrotum,“ segir Þorsteinn Vilhelmsson, íbúi í Kópavogi. Brotist var inn á heimili hans og eiginkonu hans um síðustu helgi. Brotist hefur verið inn á fimm heimili í hverfinu hans. Þorsteinn segir nauðsynlegt að lögregla sé í stakk búin til að takast hratt og vel á við verkefni af þessu tagi. Einar Ásbjörnsson, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, segir mikilvægt að fólk hafi tiltekin atriði í huga til að verjast innbrotsþjófum. Gæta þurfi að því að allar krækjur á hurðum og gluggum séu í lagi. Fólk þurfi að vera vakandi fyrir umferð fólks sem ekki virðist eiga erindi inn í götur, taka niður bílnúmer og hika ekki við að láta lögreglu vita þyki eitthvað grunsamlegt á ferðinni. Hús í jaðri hverfa hafi verið útsettari fyrir innbrotum. Gjarnan sé farið inn baka til í skjóli trjáa, sólpalla og skjólveggja. Þetta þurfi að hafa í huga. „Yfirleitt eru innbrot framin á hefðbundnum vinnutíma fólks,“ útskýrir Einar. „En í þessari hrinu nú hafa þjófarnir yfirleitt verið seinna á ferðinni, jafnvel fram undir klukkan átta á kvöldin. Bíræfnin er því töluverð.“- jss
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fleiri fréttir Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Sjá meira