Tryggir eftirlit með skilanefndum föllnu bankanna Karen Kjartansdóttir skrifar 24. mars 2011 12:30 Árni Páll telur eftirliti með skilanefndunum ábótavant og það þurfi að bæta
Viðskiptaráðherra segir að í smíðum sé frumvarp sem eigi að tryggja eftirlit með skilanefndum föllnu bankanna. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn þingmanns um hvort hann legði blessun sína yfir framferði skilanefnda. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun spurði Þráinn Bertelsson, þingmaður vinstri grænna, Árna Pál Árnason, viðskiptaráðherra út í störf og framferði skilanefnda bankanna. Þráinn sagði sér þætti starfsemi þeirra til marks um að hópar í landinu hefðu ekkert lært af hruninu. Þráinn sagðist vel gera sér grein fyrir því að eldveggur eigi að vera milli nefnda og stjórnvalda en það breyti því ekki að stjórn ríkisins sé í höndunum ríkistjórnarinnar og alþingis. Hann vildi því spyrja Árna Pál hvort hann væri sáttur við störf skilanefnda og framferði eða hvort hann hygðist aðhafast eitthvað. Árni Páll benti á að skilanefndirnar störfuðu á ábyrgð kröfuhafa en það væri mikilvægt að hafa eftirlit með þeim og slitastjórnum. Slíku eftirliti væri því miður mjög ábótavant nú. Þá þyrfti að tryggja að einstaklingar og fyrirtæki sem skulda hinum föllnu bönkum fái úrlausn sinna mála með sanngjörnum hætti en misbrestur hefði verið á því. Hins vegar vilji hann verja það kerfi að kröfuhafar fari með ábyrgð á þrotabúunum. Hann sagði að unnið væri að úrbótum á þessu og að frumvarp væri í undirbúningi um málið og stefnt væri á að leggja það fram í lok mánaðarins. Með því sé þess freistað að fella skilanefndir og slitastjórnir undir ákveðið eftirlit en jafnframt auka aðkomu kröfuhafa að því að hafa eftirlit með stórum ákvörðunum og ráðstöfun eigna. Þráinn sagði svör ráðherra loðin, skilanefndir virtust fara eftir öðru siðferði en þjóðin almennt hefði, annað hvort yrði að breyta siðferði þeirra eða almennings. Árni Páll sagði að þá að aðalatriðið væri að tryggja þurfi að ákvarðanir skilanefnda og slitastjórna um eigin viðskipti við þrotabúin séu með eðlilegum hætti og virtar séu grundvallar leikreglur sem almennt eiga að tíðkast í viðskiptalífi en semji ekki við sjálfan sig um aðstöðu kaup og kjör.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira