Mikil skothríð í höfuðborginni 7. mars 2011 04:00 Uppreisnarmenn búa sig undir átök í borginni Ra’s Lanuf í Líbíu í gær. nordicphotos/afp
Hörð átök milli uppreisnarmanna og hersveita, sem hliðhollar eru Muammar Gaddafi, héldu áfram víða í Líbíu um helgina. Ríkissjónvarpsstöð landsins greindi frá því í gær að herinn hefði aftur náð völdum í borgunum Misrata, Ra’s Lanuf, Tobruk og Zawiya. Í öðrum miðlum halda uppreisnarmenn og íbúar borganna því þó fram að mótmælendur séu enn við völd í þessum borgum. Fréttir af mannfalli í átökunum eru óljósar, en í gær töldu bráðaliðar á svæðinu að tveir hið minnsta hefðu látist og nokkrir tugir slasast. Í gærmorgun var tilkynnt um mikla skothríð í höfuðborginni Trípolí, sem hefur verið höfuðvígi Gaddafis í átökunum meðan uppreisnarmenn hafa náð flestum borgum austanverðrar Líbíu á sitt vald. Talsmenn yfirvalda útskýrðu skothríðina þannig að um fagnaðarlæti hefði verið að ræða í tilefni þess að herinn hefði tekið völdin í ofannefndum borgum á ný. Að sögn BBC draga margir þeir sem staddir eru á svæðinu þá skýringu í efa. Ekkert lát er á flóttamannastraumi frá Líbíu. Talið er að þrír slíkir frá Bangladess hafi látist og sextán annarra er saknað eftir að þeir stukku frá borði skips rétt í þann mund sem það lagðist að bryggju við grísku eyjuna Krít í gær. Þeir munu hafa óttast að vera sendir aftur til heimalands síns. Þá var átta breskum hermönnum, sem líbískir uppreisnarmenn handsömuðu í fyrrinótt, sleppt seinnipartinn í gær.- kg
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira