Kópavogur greiðir málskostnað vegna einkamáls Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 18. mars 2011 18:47
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að greiða málskostnað vegna einkamáls þriggja bæjarfulltrúa úr bæjarsjóði. Hópur bæjarbúa hefur ráðið lögfræðing og hyggst kæra málið ef niðurstaðan verður staðfest í bæjarstjórn. Frjáls miðlun ehf. höfðaði meiðyrðamál á hendur þremur bæjarfulltrúum Kópavogsbæjar vegna greinar sem þeir skrifuðu um viðskipti bæjarins við fyrirtækið. Viðskiptin höfðu farið fram án útboðs, auk þess sem eigendur fyrirtækisins tengdust þáverandi bæjarstjóra, Gunnari I. Birgissyni, fjölskylduböndum. Bæjarfulltrúarnir voru sýknaðir fyrir héraðsdómi, en báru þrátt fyrir það kostnað af málinu umfram þær bætur sem dómurinn ákvað. Í gær var samþykkt tillaga í bæjarráði Kópavogs um að málskostnaður bæjarfulltrúanna verði greiddur úr bæjarsjóði, en þeir greiði upphæðina til baka ef þeir tapi málinu fyrir hæstarétti. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs og einn bæjarfulltrúanna þriggja, segir að þetta komi til þar sem þeir hafi fallið milli skips og bryggju í kerfinu, en hvorki einkatryggingar þeirra né tryggingar Kópavogsbæjar hafi náð yfir málskostnað vegna starfa þeirra sem kjörinna fulltrúa. Því felst jafnframt í tillögunni að bæjarlögmanni verði falið að leita eftir tilboðum í tryggingar sem tækju á samskonar málum í framtíðinni. Gunnar I. Birgisson lagði fram bókun á fundi bæjarráðs þar sem hann gaf í skyn að bæjarfulltrúarnir færu með bæjarsjóð eins og banka, en það segir Guðríður ósanngjarna gagnrýni. „Mér finnst hún mjög ósanngjörn, og enganvegin rétt," segir Guðríður. „Ég held að við þurfum að hugsa þetta í stærra samhengi. Það er gerð sú krafa á kjörna fulltrúa að þeir tjái sig um þau mál sem þeir fjalla um. Það er gerð sú krafa á okkur að við höldum uppi málefnalegri gagnrýni, og það gerðum við. Við erum sýknuð, en samt sem áður fellur á okkur kostnaður þar sem málsvarnarbætur dugðu ekki fyrir málskostnaði. Ég spyr hvar lýðræðið væri statt ef niðurstaðan yrði sú að kjörnir fulltrúar geti átt á hættu að bera kostnað af því að tjá sig í fjölmiðlum eða annarstaðar." Hópur bæjarbúa hefur leitað til Jóhanns H. Hafstein, lögmanns hjá ERGO, en þeir telja óeðlilegt að opinberir sjóðir séu notaðir til að standa straum af kostnaði við einkamál bæjarfulltrúa. Hann staðfestir í samtali við fréttastofu að niðurstaða bæjarráðs verði kærð til innanríkisráðuneytisins verði hún staðfest í bæjarstjórn. Hægt er að horfa á viðtal við Guðríði vegna málsins ef smellt er á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt".
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira