Eiður Smári segir frá knattspyrnulífi sona sinna í Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. maí 2011 23:56 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen er í ítarlegu viðtali í breska blaðinu The Independent í dag og segir meðal annars frá sonum sínum þremur sem búa enn í Barcelona. Eiður Smári lék með Barcelona frá 2006 til 2009 en hefur undanfarin tvö ár verið á mála hjá liðum í Frakklandi og Englandi sem kunnugt er. Fjölskylda Eiðs Smára býr enn í Barcelona og segir hann til að mynda í viðtalinu og það hafi verið honum erfitt að vera fjarri henni undanfarin misseri. Í viðtalinu, sem má lesa hér, greinir hann frá því að synir hans þrír hafi allir áhuga á knattspyrnu og þeir tveir eldri - Sveinn Aron og Andri Lucas - eru nú að æfa með ungmennaliðum félagsins. Sveinn Aron verður þrettán ára gamall síðar í mánuðinum og er í knattspyrnuakademíu Barcelona, þeirri sömu og hefur alið af sér gríðarlegan fjölda frábærra knattspyrnumanna - þeirra á meðal Lionel Messi og marga fleiri. Andri Lucas, níu ára, er í sérstökum skóla á vegum Barcelona og segir Eiður Smári að börnin þarf þurfi að búa yfir ákveðnum hæfileikum til að geta sótt hann. Annars er foreldrum tilkynnt á kurteisan máta að „þetta sé ekki fyrir son þeirra". Um Daníel Tristan, fimm ára, segir hann: „Hann elskar fótbolta en vill ekki byrja að æfa fyrr en hann getur byrjað að æfa með Barcelona!" Þá kemur einnig fram í viðtalinu að strákarnir vilji spila fyrir hönd íslenska landsliðsins, rétt eins og faðir þeirra sem og afinn Arnór Guðjohnsen. „Það getur vel verið að þeir verði ekki knattspyrnumenn þegar fram í sækir en sá elsti virðist vera harðákveðinn í því. Mér stendur í raun á sama svo framarlega að þeir þekki muninn á réttu og röngu og komi fram við annað fólk af virðinu. Þá verð ég stoltasti pabbi í heimi."
Fótbolti Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Sjá meira