Stjórnarandstaðan ræðir við varaforsetann 5. febrúar 2011 13:00 Frá mótmælunum í Egyptalandi Mynd/AFP
Mótmælendur í Kaíró hafa komið á frumstæðu stjórnmálakerfi til að samræma kröfur sínar. Búist er við að stjórnarandstaðan ræði við varaforseta landsins í dag. Mótmæli hafa geisað stanslaust síðustu ellefu daga í Egyptalandi, en rauði þráðurinn í mótmælunum hefur verið krafan um að Hosni Mubarak, forseti landsins, fari frá völdum. Nú hafa fulltrúar hópa mótmælenda og grasrótarhreyfinga tekið sig saman um að setja saman fullbúinn lista með samræmdum markmiðum. Kröfurnar eru svo lesnar upp á Tahrir torgi, miðstöð mótmælanna, og það fer svo eftir því hvort mótmælendur fagna kröfunum eða baula á þær hvort staðið verði við þær. Breska dagblaðið Guardian greinir frá þessari skipan mála, en kröfurnar eru meðal annarra að öll valdastéttin fari frá og sérstök nefnd skipuð fulltrúum hersins, ungliðahreyfinga og dómara velji nýja ríkisstjórn. Þá er einnig kallað eftir nýrri stjórnarskrá. Haft er eftir einum ungliðanum að stjórnmálin hafi færst út á göturnar eftir að ríkisstjórnin lokaði fyrir aðgang að veraldarvefnum, og þetta sé eins lýðræðislegt ferli og hægt er miðað við aðstæður. Enn er mótmælt á torginu, en mótmælin eru friðsamleg það sem af er degi, þrátt fyrir að andrúmsloftið sé spennuþrungið. Búist er við að ýmsir stjórnarandstöðuflokkar ræði við varaforseta landsins í dag. Einhverjir þeirra höfðu áður neitað að koma að hvers kyns viðræðum við sitjandi stjórnvöld, en samþykktu það gegn því að yfirvöld rannsaki átök sem ítrekað hafa blossað upp við mótmælin. Bræðralag múslima neitar hins vegar enn að ræða við yfirvöld fyrr en Mubarak er farinn frá. Mótmælin undanfarna daga hafa reynst Egyptum kostnaðarsöm, en forsetinn átti fund með ráðherrum sínum og seðlabankastjóra í dag til að ræða ástand efnahagsmála. Hagkerfið er nánast lamað, en sérfræðingar telja að mótmælin kosti að andvirði 35 milljarða króna vegna glataðrar framleiðslu og skemmda. Þá hafa ferðamenn flúið landið og verð á vörum eins og tóbaki og brauði hefur hækkað mikið. Breska ríkisútvarpið hefur eftir fjármálaráðherra Egyptalands að ástand hagkerfisins sé alvarlegt, en stoðir þess séu þó traustar.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Sjá meira