Hvíta-Rússland á Ólympíuleikana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. júní 2011 14:55 Úr leiknum í dag. Mynd/AP
U-21 lið Hvíta-Rússlands tryggði sér í dag þriðja sætið á EM í Danmörku með 1-0 sigur á Tékkum í bronsleiknum. Það þýðir að Hvít-Rússar keppa á Ólympíuleikunum í Lundúnum á næsta ári, ásamt Spáni og Sviss sem mætast í úrslitaleiknum í kvöld. Eftir nokkuð tíðindalítinn fyrri hálfleik þar sem Tékkar voru kannski aðeins sterkari aðilinn tóku Hvít-Rússar öll völd í síðari hálfleik og sköpuðu sér nokkur hættuleg færi í leiknum. Ekki varð útlitið betra fyrir Tékka þegar að Lukas Vacha fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum, stundarfjórðungi fyrir leikslok, fyrir að handleika knöttinn. Tékkar máttu ekki við því að vera manni færri síðustu mínútur leiksins. Enda kom það á daginn að sóknarþungi Hvít-Rússa bar árangur. Á 88. mínútu fengu þeir aukaspyrnu sem þeir spiluðu úr á hægri kantinn þar sem Oleg Veretilo gaf fyrirgjöf inn á teig. Þar tók varnarmaðurinn Yegor Filipenko við knettinum og skoraði með viðstöðulausu skoti í teignum. Þetta reyndist sigurmark leiksins og Hvít-Rússar, sem höfðu ekki unnið leik á mótinu síðan að liðið lagði Íslendinga í fyrstu umferð riðlakeppninnar í Árósum, fögnuðu sætum sigri. Hvíta-Rússland, Danmörk og Ísland enduðu öll með þrjú stig í A-riðli keppninnar en Hvít-Rússar komust áfram á hagstæðasta markahlutfallinu í innbyrðisviðureignum liðanna. Þeir töpuðu svo fyrir Spánverjum í undanúrslitunum en unnu svo í dag sterkt lið Tékka - sem margir höfðu spáð góðu gengi á mótinu. Úrslitaleikur Sviss og Spánar hefst klukkan 18.45 í kvöld.
Mest lesið Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Sport „Mér býður við þessu, satt best að segja“ Enski boltinn Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Sport „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Handbolti Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Enski boltinn Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Fótbolti Þórsarar fá nýtt íþróttahús Sport „Það væri bara mjög hrokafullt að vera ekki ánægður“ Sport Ísraelskir Ólympíuforkólfar vilja banna sjónvarpslýsanda Sport Fleiri fréttir Kominn með nóg af flakkinu „Mér býður við þessu, satt best að segja“ „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Stórsigur hjá Forest en Brann tapaði á heimavelli „Prestianni-lögin“ gætu orðið hluti af fótboltanum Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni Frekur Gordon minnti á Shearer og bætti markamet hans Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Fabrégas reif í treyju leikmanns en Allegri fékk rautt spjald „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Atletico Madrid missti niður tveggja marka forskot í Belgíu Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú „Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sverrir frá Eyjum til FH Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sparar ekki stóru orðin í garð Íslendingsins sem gæti farið alla leið í boltanum Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Valdimar fer ekki til Mexíkó Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu